Segja öryggisbúnað í Herjólfi ónothæfan 22. september 2010 03:00 Manna þarf bátana um borð í skipinu og hífa þá síðan með handvirkum krana niður á hafflötinn. Þetta telja kunnugir erfitt eða illgerlegt í neyð. fréttablaðið/óskar
Fullyrt er að sjósetningarbúnaður björgunarbáta um borð í farþegaferjunni Herjólfi sé gamaldags og vart nothæfur í neyð. Búnaðurinn, sem er handvirkur, stenst Evróputilskipun um öryggisbúnað um borð í skipum í millilandasiglingum. „Það getur vel verið að búnaðurinn standist tilskipun frá Evrópu. En það breytir því samt ekki að til þess að koma nokkur hundruð manns frá skipinu í björgunarbátum verður að nota handsnúinn krana," segir Sigmund Jóhannsson, teiknari og uppfinningamaður. Sigmund hannaði sjósetningarbúnað fyrir björgunarbáta sem við hann er kenndur. „Ef þú hugsar þér úfinn sjó og þrjátíu gráðu halla á skipinu þá sér það hver heilvita maður að þessi búnaður er ónothæfur." Sigmund segir að betri og öruggari sjósetningarbúnaður sé bæði fáanlegur hérlendis og utan landsteinanna. Sigmund og Friðrik Ásmundsson, fyrrverandi skólastjóri Stýrimannaskólans í Vestmannaeyjum, skrifa grein á fréttavefinn eyjafrettir.is þar sem þeir fullyrða að trúlega sé ekkert íslenskt skip með eins fornfálegan sjósetningarbúnað björgunarbáta og Herjólfur. Þeir fara fram á að almannavarnanefnd Vestmannaeyja, eða aðrir sem málið varðar, láti fara fram óháða rannsókn á búnaðinum. Fréttablaðið hefur haft samband við sjómenn sem unnið hafa um borð í Herjólfi og aðra sem þekkja vel til skipsins og búnaðarins. Þeir taka undir að hann sé afar erfiður í notkun og langan tíma taki að koma fólki frá skipinu. Björgunaræfingar, sem gerðar hafi verið við bestu aðstæður, staðfesti það. Hins vegar liggi ekki fyrir hvort annar nýrri búnaður myndi henta betur. Þar á meðal rennur, svipaðar þeim sem nýttar eru til að koma fólki út úr farþegaþotum, sem teknar hafa verið um borð í mörgum ferjum erlendis á undanförnum árum. Geir Þór Geirsson, forstöðumaður skipaeftirlitssviðs Siglingamálastofnunar, segir búnaðinn um borð uppfylla þær kröfur sem gerðar eru samkvæmt reglugerð um farþegaskip í innanlandssiglingum og að Siglingastofnun geti ekki krafist búnaðar um borð í skip umfram það sem reglur gera ráð fyrir. „Það er hægt að fá mismunandi tegundir af búnaði til að sjósetja björgunarbáta og til að rýma skip. Sjálfsagt er slíkur búnaður misjafnlega góður eða hentar misjafnlega eftir atvikum. Það má spyrja hvort þetta sé besti búnaðurinn sem hægt er að fá. Það er huglægt mat. En búnaðurinn uppfyllir kröfurnar," segir Geir. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Innlent Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Innlent Lögreglan leitar að Cezary Innlent „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ Innlent Mokgræðir á rafmyntum Innlent Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Innlent „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Innlent Úkraínumenn kaupa sextán Gripen E frá Svíþjóð Erlent Séra Þórir Stephensen er látinn Innlent Hvalur háði hálftíma dauðastríð Innlent Fleiri fréttir Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sér Blönduós eflast með byggðalínu og virkjunum Mímósuísinn ljúffengur en gerir aldrei aftur Jägermeister-ís Ógn felist í hótunum Paul Watson-samtakanna Lögreglan leitar að Cezary Aflvana togari hættulega nálægt landi Vegum lokað og bílar taldir Starfsemi Hvals mögulega í uppnám: Hefur ekki svarað eftirlitinu frá því í maí Segir verk Þórbergs enn ótrúlega lifandi „Hagið ykkur eins og fullorðið fólk“ „Hverjir hafa efni á því að kaupa gramm af kókaíni?“ Stærsta kókaínmál Íslandssögunnar og ráðherra sakar starfsmenn Hvals um fíflaskap Lokaeinkunnirnar vísbending um ósamræmda einkunnagjöf Komu slösuðum til bjargar í Drangey Hátt í þriggja milljarða króna virði af kókaíni Tímamót hjá Klettaskóla: „Allir mjög peppaðir“ Spiluðu þjóðsönginn á meðan hvalurinn var dreginn á land Gómaður með tæp sextíu kíló af amfetamíni og „bleikt kókaín“ Níu í haldi fyrir að smygla yfir hundrað kílóum af kókaíni í sjókistu Stefnt á kappræður milli utanríkisráðherra Traust til íslenskra yfirvalda sagt fara vaxandi Synjun Suðurlandsbrautar gæti tafið fyrstu lotu Borgarlínu „Þú verður að hafa stjórn á tækninni sem þú nýtir“ Krefst sýknu í öllum ákæruliðum: „Hún ætlaði aldrei að snúa aftur“ Sjá meira