Ók ölvuð til lögreglunnar og bað hana um aka sér heim 12. mars 2010 14:15
Kona á fimmtugsaldri var dæmd fyrri ölvunarakstur í Héraðsdómi Reykjaness í morgun. Konan kom á lögreglustöðina í júlí á síðasta ári sjáanlega mjög ölvuð, og tók þar á móti henni lögreglumaður. Bað konan lögreglumanninn um að aka sér heim á bifreið hennar vegna þess að hún væri ekki í ástandi til þess að aka sjálf. Er hún var innt eftir því hvort hún hafi sjálf komið akandi að lögreglustöðinni kvað hún vin sinn hafa ekið en hann væri horfinn á braut og skömmu síðar breytti hún frásögn sinni á þann veg að sonur hennar sem hún vildi ekki nafngreina hefði ekið. Þegar varðstjóri lögreglunnar, sem hún var leidd fyrir, tilkynnti henni að hann ætlaði að hringja í soninn til þess að spyrja hann hvort hann hafi ekið sagði hún það óþarft og viðurkenndi að hún hefði sjálf ekið bifreiðinni. Kvaðst konan hafa drukkið áfengi í grillveislu og ekið af stað heim til sín en ákveðið að keyra að lögreglustöðinni og leggja bílnum þar og fá far heim. Í framhaldi af þessum framburði konunnar gaf hún öndunarsýni sem staðfesti að hún hefði verið ölvuð og leiddi til þess að hún var svipt ökurétti til bráðabirgða þegar í stað. En málinu var ekki lokið þar. Tveimur mánuðum síðar kom konan aftur til lögreglunnar, nú edrú, í þeim erindum að draga til baka fyrri framburð sinn og kvaðst ekki hafa ekið bifreiðinni í umrætt sinn eins og hún hafði áður játað og nefndi til sögunnar sem ökumann æskuvinkonu sína. Hún sagði umræddan dag hefði hún farið í heimsókn til vinkonu sinnar þar sem þær grilluðu saman en ekki tókst þó betur til en að þær hafi farið að rífast með þeim afleiðingum að vinkonan fékk sig fullsadda af hinni drukknu og vildi aka henni heim. Á leiðinn hafi þær haldið áfram að rífast og endaði ferðalagið við lögreglustöðina að kröfu þeirra drukknu sem þar fór út úr bílnum í þeim tilgangi að fá lögregluna til þess að aka sér heim. Vinkonan hafi þá farið burt í fússi en heim til hennar sé 5 til 6 mínútna gangur frá lögreglustöðinni. Í dómsorði segir að konunni hafi ekki tekist að færa fram neina skynsamlega og trúverðuga skýringu á afturhvarfi sínu frá fyrri játningu, til þess nægi engan veginn ótrúverðugur framburður vinkonu hennar. Að þessu virtu og með stuðningi, einkum í afdráttarlausum framburði lögregluvarðstjórans, var ekki lagður trúnaður á afturhvarf konunnar frá játningu sinni og talið yfir allan skynsamlegan vafa hafið að hún væri sannarlega sek um ölvunarakstur. Hún var svipt ökuréttindum í átján mánuði og skal greiða 160 þúsund krónur í sekt.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira