Alvarlegur misbrestur varð á að tilkynna um vinnuslys 10. september 2010 11:49 MYND/Vilhelm
Alvarlegur misbrestur virðist hafa orðið á að tilkynna réttum aðilum um alvarlegt vinnuslys sem varð á kjúklingabitastað KFC í Kópavogi í gærkvöldi. Þrír starfsmenn staðarins brenndust og liggur einn þeirra á gjörgæsludeild. Hann verður þó líklega útskrifaður á aðra deild í dag, að sögn læknis. Hann brenndist í andliti, á brjósti og á höndum. Annar var lagður inn á almenna deild í nótt, eftir aðhlynningu, en sá þriðji var útskrifaður eftir að gert hafði verið að sárum hans. Samkvæmt Helga Vilhjálmssyni, aðaleiganda KFC var hringt á Neyðarlínuna, en þar hafi verið sagt að best væri að hringja á leigubíl og senda mennina með honum á Slysadeild, sem var gert. Nú er verið að kanna hjá Neyðarlínunni hvort svo hafi verið, og líka af hverju hún lét lögreglu ekki vita. Slysið varð laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi, en lögregla frétti ekki af því fyrr en 18 mínútur yfir miðnætti, þegar aðstandandi eins hinna slösuðu hringdi í lögregluna til að spyrjast fyrir um líðan hans. Rannsóknalögreglumaður var þá sendur á staðinn, en þá voru aðeins rafvirkjar þar að lagfæra raflagnir. Vinnueftirlitið vissi ekki af málinu fyrr en fréttastofan spurðist fyrir um rannsókn á því í morgun, en það er nú farið að kanna málið.
Mest lesið Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Klausturbleikjan fæst ekki lengur Innlent Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Innlent Paradís Kushner ógn við aðildarviðræður Albaníu og ESB Erlent „Skráningum rignir inn“ Innlent Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Innlent Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Innlent „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ Innlent Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Innlent Fleiri fréttir Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Fylgi Sjálfstæðisflokks ekki meira í sex ár „Verulegur samdráttur og menn eru að segja upp mannskap“ „Skráningum rignir inn“ Eftirspurn eftir kókaíni virðist aldrei hafa verið meiri Staðfesta fjölskyldutengsl nú með DNA-rannsókn Nýtt innviðafélag hlýtur nafnið Göng og brú Ný hreyfing mynduð gegn aðild að ESB Kristján allt annað en sáttur við typpadansinn Dæmdur morðingi grunaður í Straumsvíkurmálinu Rannsókn í gangi á lengd dauðastríðsins Kókaínhaldlagningar komnar í 200 kíló á hálfu ári Tveimur sagt upp á Bifröst Enn eitt fíkniefnametið slegið og yfirvöld hvött til að afturkalla hvalveiðileyfi Rennibrautinni lokað og ljósin skoðuð Hvalur háði hálftíma dauðastríð Hanna Katrín eigi að standa með starfsfólki Hvals – ekki gagnrýna það Gómuð af tollinum með tvo lítra af kókaíni innvortis Komst á bragð skemmdarverka í baráttunni við Kristján Loftsson Mokgræðir á rafmyntum Séra Þórir Stephensen er látinn Féll fram af svölum á hjúkrunaheimili og lést Lögregla rannsakar tvö innbrot í miðborginni Sjá meira