Innlent

Nýr sveitastjóri tekinn við í Skagafirði

Ásta Björg Pálmadóttir hefur tekið við embætti sveitarstjóra í Skagafirði. Hún tók við lyklum af Ráðhúsinu á Sauðárkróki úr hendi fráfarandi sveitarstjóra, Guðmundar Guðlaugssonar, sem þó mun aðstoða Ástu við að kynnast starfinu til næstu mánaðarmóta.

Starfsfólk Ráðhússins tók á móti Ástu með kökum á kaffistofunni og þakkaði Ásta fyrir góðar móttökur og sagðist hlakka til að takast á við spennandi verkefni hjá sveitarfélaginu.

Ásta er fædd og uppalin í Skagafirði, hún sneri aftur í Skagafjörð fyrir 13 árum eftir nám og störf í Reykjavík og síðan hefur hún meðal annars starfað hjá Fiskiðjunni á Sauðárkróki og nú síðast sem útibússtjóri Landsbankans á Sauðárkróki. Ásta er gift Þór Jónssyni og eiga þau þrjú börn. Svölu 24 ára, Helgu 15 ára og Pálma 12 ára.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×