Kvenfélög vilja verja orlofsfé húsmæðra 29. maí 2010 02:30 Rekstur á heimilum er enn að mestu leyti í höndum kvenna og þær hafa lægri laun, segir forseti Kvenfélagasambands Íslands sem kveður alls ekki rétt að jafnrétti sé náð og finnst að húsmæður eigi enn skilið að fá húsmæðraorlof. Fréttablaðið/Anton
Sigurlaug Viborg, forseti Kvenfélagasambands Íslands, segir sambandið leggjast gegn frumvarpi um afnám húsmæðraorlofs. „Þetta er sérstaklega mikils virði fyrir fullorðnar konur sem ekki eru með neina digra sjóði á bak við sig. Félagslegi þátturinn er ekki síður mikilvægur því sumar konur hafa ekki aðstöðu til að ferðast nema í svona hóp,“ segir Sigurlaug. Að upphaflegu frumkvæði bæjarstjórnar Hveragerðis ályktaði Samband sveitarfélaga um að afnema ætti húsmæðraorlof og liggur nú fyrir á Alþingi frumvarp þessa efnis. Eins og lögin eru í dag greiðir hvert sveitarfélag eitt hundrað krónur á hvern íbúa til orlofsnefnda í sínu héraði. Þannig á Hveragerði að greiða um 210 þúsund krónur á þessu ári. Sveitarfélögin í heild greiða ríflega 30 milljónir á ári. „Þessar greiðslur frá sveitarfélögunum eru ekki það háar að það skipti öllu máli fyrir þau en skipta máli fyrir konurnar sem fá örlitla niðurgreiðslu á orlofsferðir,“ segir Sigurlaug. Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði, segir hins vegar að húsmæðraorlofið sé arfur fortíðar og frá þeim tíma þegar fólk hafi yfirleitt ekki farið í ferðalög. Furðuleg sé að skikka sveitarfélög til að borga í orlofið. „Bæjarstjórnin hér er einhuga í því að lög um húsmæðraorlof séu algjör tímaskekkja, út frá jafnréttis- og jafnræðissjónarmiðum. Með sama hætti mætti segja að það ætti að vera orlof fyrir námsmenn, þeir eru líka blönk stétt,“ segir Aldís. Sigurlaug Viborg segir Kvenfélagasambandið skila Alþingi umsögn um frumvarpið í júní. „Mér skilst að þetta frumvarp byggi á því að nú sé jafnrétti náð og því sé ástæða til að fella þetta niður. Ég er algjörlega ósammála því vegna þess að það er svo fjarri því að jafnrétti sé náð. Konur eru ennþá með miklu lægri laun en karlar og hafa þar af leiðandi miklu minni lífeyrissjóði og annað upp á að hlaupa í sambandi við orlof,“ segir Sigurlaug og bætir við að rekstur á heimilum sé ennþá að mestu í höndum kvenna. „Hver hugsar um matinn á hátíðum til þess að öll fjölskyldan geti haft það yndislegt? Það eru náttúrulega yfirleitt húsmæðurnar. Þær eiga það fyllilega skilið að húsmæðraorlofið sé ekki fellt niður.“ „Með sama hætti mætti segja að það ætti að vera orlof fyrir námsmenn, þeir eru líka blönk stétt.“ Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði.gar@frettabladid.is
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Innlent Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Allt að sautján stiga hiti í dag Veður „Þurfum að huga að forvörnum“ Fréttir Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Fleiri fréttir Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Birgir Ármannsson kominn með málflutningsréttindi Þingmenn ekki svo heppnir að fá tvöföld laun Standa saman gegn „óskiljanlegri“ ósk Vegagerðarinnar Helgi leiðir nefnd um atvinnumál í Norðurþingi Nú má heita Kareem Link Baggio og Anóra Vava Star Kerfið bilaði og atkvæði greidd upp á gamla mátann Ánægja með gjaldfrjálsar skólamáltíðir en fjármögnunin áskorun Verðbólga eykst og Alþingi í óvissu Gerðu úttekt á skrifstofu Ríkissáttasemjara Sjá meira