Heitar súkkulaðiráðstafanir 22. desember 2010 06:00 Fríða Sigurðardóttir býst við mikilli jólaös á kaffihúsinu á þorláksmessu og hafa starfsmenn gert viðeigandi ráðstafanir til að bregðast við því. „
Það er rosalega góð stemning í bænum og salan er betri heldur en í fyrra,“ segir Arndís B. Sigurgeirsdóttir, verslunarstjóri og eigandi bókabúðarinnar Iðu á Lækjargötu. „Kannski er bærinn að bjóða upp á meira í ár heldur en áður, ég veit það ekki. En hvað sem það er þá er það allavega að virka.“ Verslunareigendur á Laugaveginum virðast almennt vera á sama máli um það að þrátt fyrir kólnandi veður og verslunarmiðstöðvar, sé að aukast líf í miðbæ Reykjavíkur að nýju fyrir jólin. „Mér finnst bærinn vera að koma aftur og ég er farin að heyra aftur hljóð í fólki eins og í gamla daga, áður en verslunarmiðstöðvarnar komu, að fara saman í bæinn,“ segir Arndís. „Það er bjartara yfir fólkinu heldur en hefur verið og þrátt fyrir frosthörkur er jólastemningin hér.“ Sala á erlendum bókum í Iðu hefur aukist um 40 prósent sé miðað við sama tíma í fyrra. Arndís segir svokallaðar „Table Top“ bækur verði vinsælli gjafir með hverju ári en sala á íslenskum bókum hefur haldist stöðug. „Það er meira að gera í dag en í gær og það heldur lífinu í okkur kaupmönnunum,“ segir Arndís. Fríða Sigurðardóttir, starfsmaður á kaffihúsinu Tíu dropum á Laugaveginum, tekur undir orð Arndísar og segir stemninguna í miðbænum fara stigvaxandi dag frá degi. „Fólk pantar heitt súkkulaði eins og það sé að fara úr tísku,“ segir Fríða. „Fólk hrannast inn og það myndast oft biðraðir út úr dyrum.“ Fríða hefur undirbúið starfsfólk 10 dropa vel undir stærsta kvöld ársins, Þorláksmessu. „Þá verður toppnum náð,“ segir hún. „Við erum búin að setja neyðarráðstafanir í gang til þess að það muni allt ganga smurt fyrir sig. Súkkulaðið verður hitað í 30 lítra potti og við verðum þrisvar sinnum fleiri á vakt en á venjulegum kvöldum.“ Dögg Hjaltalín, verslunarstjóri bókabúðarinnar Máls og menningar, segir að fólk sé almennt farið að venja komur sínar meira í miðbæinn en áður. „Það eru komnar margar gæðaverslanir í bæinn og traffíkin hefur aukist eftir því,“ segir hún. „Fólk er farið að gera meira eins og í gamla daga, að fara í bæinn og eyða góðum tíma þar í einu.“ sunna@frettabladid.is gluggakaup Ungir sem aldnir leggja leið sína í miðborgina til þess að versla fyrir jólin. fréttablaðið/valli
Mest lesið Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Innlent „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Innlent Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Innlent Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Innlent Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Innlent Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Innlent Lítilli flugvél flogið á hæsta skýjakljúf Peking Erlent Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Innlent Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Innlent Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni Innlent Fleiri fréttir Verðhækkanirnar vonbrigði Fjármálaráðherra telur tæpt að forsenduákvæði kjarasamninga haldi Skipuð skólameistari eftir storminn á Bifröst Baðlón sýknað af kröfum fyrrverandi starfsmanns Drógu dauða langreyði fram hjá hvalaskoðunarskipi: „Áttu ekki til orð“ Telur „gusumeistara“ hafa sölsað undir sig eign borgarinnar Fella þurfi niður tungumálaþröskulda og auka traust á kerfinu Brottfararstöð þurfi að hafa pláss fyrir þrjátíu manns Áhyggjuefni að markmið kjarasamninga sé ekki að nást Fiskverð í hæstu hæðum og strandveiðimenn brosa allan hringinn Verðbólgan eykst þvert á spár og fiskverð í hæstu hæðum „Í guðanna bænum ekki apa eftir þessu“ Nöfn úr rannsókn sáust í kynningarmyndbandi Ivanka Trump og Jared Kushner á Íslandi Þessi sóttu um starf upplýsingafulltrúa Fær ekki bætur fyrir sóttkví vegna Covid-19 Telur gagnrýni sveitarfélaganna ekki eiga við rök að styðjast Neitaði að yfirgefa strætisvagninn Vilja semja aftur um bensínstöðalóðir í borginni Skerðing á opnun í frístund verði afturkölluð Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Bjóða ferðamönnum að gista í súrheysturni „Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Stutt stopp hjá gjaldfrjálsum Strætó Stúlkan er fundin Boðar frekari niðurskurð Borgarstarfsmenn taka pokann sinn og kapphlaup við tímann í Venesúela Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann „Erfiður dagur í ráðhúsinu í dag“ Handtekinn af sérsveitarmönnum undir Esjunni Sjá meira