Máttu greina frá aksturstíma og ökuleið í rannsóknarskýrslu 23. september 2010 15:30 Héraðsdómur Reykjavíkur.
Íslenska ríkið var sýknað af skaðabótakröfu karlmanns í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Maðurinn taldi rannsóknanefnd umferðarslysa meðal annars hafa brotið á friðhelgi einkalífs síns þegar stofnunin birti á vef sínum skýrslu um umferðaslys sem átti sér stað árið 2008. Krafðist hann fimm milljóna í skaðabætur en hann taldi ekki réttlætanlegt að rannsóknanefndin hefði greint frá akstursleið og ökutíma mannsins sem lenti í slysinu. Um banaslys var að ræða en karlmaður lést er hann ók út af vegi. Annar karlmaður var með manninum í bílnum. Maðurinn sem kærði hafði verið giftur ökumanninum í átta og hálfan mánuð. Áður höfðu þeir lengi verið í sambúð. Taldi maðurinn sem stefndi ríkinu að í skýrslu rannsóknanefndarinnar hefðu komið fram upplýsingar sem gátu sýnt fram á að hinn látni hefði átt í ástarsambandi við farþegann. Taldi hann ennfremur að þær upplýsingar hefðu ekki átt erindi við almenning. Umræddur farþegi gaf ekki skýrslu fyrir dómi en í greinargerð stefnda var því mótmælt að það lægi fyrir að hinn látni og farþeginn hefðu átt í ástarsambandi. Dómara þótti því óvarlegt að telja fullsannað að sambandi hins látna og farþegans hafi verið með þeim hætti sem stefnandi hélt fram. Í ljósi atvika taldi dómurinn þó rétt að leggja til grundvallar að líkindi væru á því að tengsl mannanna hafi rist dýpra en venjuleg vinatengsl gera að jafnaði. Héraðsdómur telur það réttlætanlegt að rannsóknarnefndin hafi greint frá akstursleið og ökutíma svo og að farþegi hafi verið í bifreiðinni á leið til Reykjavíkur til að útskýra hvernig nefndin hafi komist að niðurstöðu. Svo segir í dómnum að það hafi ekki verið ráðið af lestri skýrslunnar um hverja var að ræða eða hvers eðlis samband farþegans og ökumannsins hefði verið. Þá lá ekkert fyrir um að rannsóknanefnd umferðarslysa eða starfsmenn hennar hafi vitað eða mátt vita um kynhneigð mannanna. Var ríkið því sýknað.
Mest lesið Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Innlent Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Innlent Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Innlent Flugmaðurinn er fundinn Innlent Banaslys í Þrengslunum Innlent Stór skjálfti á Nesjavöllum Innlent Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Innlent „Uppáhaldið“ hans Epsteins mun erfa veldið Erlent Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Innlent Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Innlent Fleiri fréttir Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Lilja Rafney syrgir eiginmann sinn Fluttur til Danmerkur með alvarleg brunasár Banaslys í Þrengslunum Barðist fyrir lífi sínu nóttina eftir að ofbeldismaðurinn hlaut dóm Skjálftinn fannst í Grundarfirði og Búðardal Lá á bjöllunum og endaði á því að brjótast inn Stór skjálfti á Nesjavöllum Rennibraut vélarinnar hafi virkjast á flughlaði Ekki gott að möguleg lögbrot hafi fengið að malla árum saman „Fólk bara fór í hina úlpuna sína og brosti“ Umræða í hnút: Hann segir, hún segir, þarna stendur... hvað er rétt? „Alltaf tortryggin gagnvart boði um gull og græna skóga“ „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Sjá meira