Innlent

Þrír ráðherrar svöruðu ekki

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Þrír ráðherrar sem sátu í ríkisstjórn í aðdraganda bankahrunsins ákváðu að svara ekki þingmannanefnd sem fjallaði um skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Þingmannanefndin sendi bréf til ráðherra sem sátu í ríkisstjórn frá janúar 2007 þar til ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokksins og Samfylkingarinnar var slitið í febrúar í fyrra. Með bréfunum vildi nefndin veita ráðherrunum fyrrverandi tækifæri til að senda athugasemdir, upplýsingar eða svör við niðurstöðum í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis.

Þeir Björn Bjarnason og Guðlaugur Þór Þórðarson sátu í ráðherraembættum fyrir Sjálfstæðisflokkinn á þessu tímabili. Þeir töldu ekki ástæðu til að svara nefndinni. Auk þeirra svaraði Magnús Stefánsson, sem sat í embætti félagsmálaráðherra fyrir Framsóknarflokkinn, ekki nefndinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×