Innlent

Gagnaveitan unir úrskurði

Ljósleiðarar Gagnaveita Reykjavíkur hefur lagt ljósleiðara í hús á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár. Fréttablaðið/GVA
Ljósleiðarar Gagnaveita Reykjavíkur hefur lagt ljósleiðara í hús á höfuðborgarsvæðinu undanfarin ár. Fréttablaðið/GVA
Fjarskiptamál Gagnaveita Reykjavíkur hyggst una úrskurði Póst- og fjarskiptastofnunar þess efnis að greiða skuli vexti af láni Orkuveitu Reykjavíkur (OR) til fyrirtækisins tvisvar á ári. Lánið er tilkomið vegna aðskilnaðar Gagnaveitunnar og OR, sem Póst- og fjarskiptastofnun mælti fyrir um. Stofnunin gerði á miðvikudag alvarlegar athugasemdir við lánið.

„Hér er ekki verið að fella niður vexti heldur fresta greiðslu þeirra," segir Birgir Rafn Þráinsson, framkvæmdastjóri Gagnaveitunnar. Hann segir ekki rétt sem fram kom í Fréttablaðinu í gær að lánið hafi átt að vera vaxtalaust á lánstímanum. Hið rétta sé að safna hafi átt upp vöxtum á lánstímanum og greiða þá þegar lánið yrði greitt upp.

Póst- og fjarskiptastofnun komst hins vegar að þeirri niðurstöðu að slík fyrirgreiðsla stæðist ekki ákvæði fjarskiptalaga né samrýmdist fyrri ákvörðunum stofnunarinnar um lánakjör.

Birgir segir að Gagnaveitan uni þeirri niðurstöðu og hafi þegar greitt þá vexti sem frestað hafi verið að borga þar til niðurstaða Póst- og fjarskiptastofnunar hafi verið kynnt fyrirtækinu. - bj




Fleiri fréttir

Sjá meira


×