Reykjavík gæti orðið Græna borgin 9. september 2010 13:29 Fulltrúar borgarinnar sátu fyrir svörum í Brussel. Mynd af vef Reykjavíkurborgar.
Jón Gnarr borgarstjóri segir að Reykjavík eigi góða möguleika á að verða Græna borgin í Evrópu en hann sat fyrir svörum sérstakrar dómnefndar í Brussel í gær. Tvær evrópskar borgir verða valdar í október til að bera titilinn European Green Capital eða Græna borgin í Evrópu árin 2012 og 2013. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að sautján borgir í tólf Evrópulöndum hafi sótt um tilnefninguna og skilað inn viðamiklum umsóknum. „Sex þeirra komust í undanúrslit og fengu tækifæri til að flytja mál sitt í Brussel. Það voru Núrnberg frá Þýskalandi, Nantes frá Frakklandi, Málmey frá Svíþjóð, Barcelóna og Vitoria-Gasteiz frá Spáni ásamt Reykjavíkurborg." Þau Jón Gnarr, Karl Sigurðsson formaður umhverfis- og samgönguráðs og Heiða Kristín Helgadóttir aðstoðarmaður borgarstjóra sátu fyrir svörum ásamt sérfræðingum Reykjavíkurborgar á sviði umhverfis- og skipulagsmála. Ellý Katrín Guðmundsdóttir sviðsstýra flutti kynningu og sýndi nýtt myndband um Reykjavík sem græna borg. Heiður að komast í forvalið „Ég er ánægður með hversu faglega starfsmenn borgarinnar hafa staðið að umsókninni enda er heiður að komast í forval þessarar mikilvægu tilnefningar," sagði Jón Gnarr. „Við höfum gífurlega mikinn áhuga á að vinna að umhverfismálunum í borginni," sagði borgarstjóri og bætti við að Reykjavík gæti orðið fyrirmynd annarra borga, til að mynda í loftgæða- og loftslagsmálum. Í umsókninni er dregið saman hvað Reykjavíkurborg hefur gert á liðnum árum í umhverfismálum og er sú vinna metin í samhengi við aðrar borgir í Evrópu að því er fram kemur í tilkynningunni. „Fjölmargir sérfræðingar hjá Reykjavíkurborg komu að umsókninni og öllu ferlinu sem þar liggur að baki. Reykjavíkurborg kom m.a. einna best út í loftgæða- og kynningarmálum sem er góð viðurkenning á þeim fjölmörgu verkefnum sem borgin hefur ráðist í hvað þau mál varðar. Einnig hefur umsóknarferlið dregið fram að helstu verkefnin framundan hjá borginni liggja í samgöngu- og úrgangsmálum." Hér má sjá kynningarmyndbandið sem sýnt var í Brussel.
Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira