Aðeins ein þyrla sinnir skyldum Landhelgisgæslunnar 30. júní 2010 12:10 Björgunarþyrlan Gná er ein eftir. Mynd/Arnþór Birkisson
Landhelgisgæslan hefur aðeins eina þyrlu þessa stundina til að sinna leitar-, eftirlits- og björgunarstörfum yfir öllu landinu og miðunum. Sjómenn segja að öryggi þeirra hafi ekki verið jafn illa borgið í marga áratugi. Björgunarþyrlunni Eir var skilað til leigusala í gær og flaug hún út í gærkvöldi. Stóra þyrlan Líf er í stórri skoðun og óflughæf á meðan og þá er aðeins björgunarþyrlan Gná eftir, sem er leiguþyrla frá Noregi. Eftirlitsflugvélin Sif er í leiguverkefni í Eyjahafi, Varðskipið Ægir í leiguverkefni við strendur Senegals og sjómælingabáturinn Baldur er bundinn við bryggju vegna fjárskorts. Varðskipið Týr, er á heimleið frá Færeyjum, þar sem það tók meðal annars olíu í sparnaðarskyni, en kemur væntanlega inn á íslenska bjögunarsvæðið í dag, þannig að þá verða þar ein þyrla og eitt varðskip til taks. Ef farið er aftur til þess tíma sem Varnarliðið var hér, var Gæslan með tvær þyrlur og Varnarliðið með fimm, auk eldsneytisvélar, og þá voru þrjú varðskip gerð út við Íslandsstrendur. Eftir að Varnarliðið fór, var fjölgað í íslensku þyrlusveitinni upp í fjórar þyrlur, en nú eru aðeins tvær eftir, þar af önnur í skoðun, og aðeins tvö varðskip eftir og annað þeirra í leigu. Að sögn Georgs Lárussonar, forstjóra Landhelgisgæslunnar, hefði nánast blasað við að loka stofnuninni vegna fjárskorts, ef erlendu leiguverkefnin hefðu ekki komið til sögunnar. Það komi meðal annars í veg fyrir að segja þurfi upp þjálfuðu starfsfólki, sem komi til góða, þegar betur fer að ára.
Mest lesið „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Innlent Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Innlent Hnífjafnt og möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Erlent Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Innlent Bókun 35 útskýrð á mannamáli Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Hverjir tala við mömmu mína?“ Innlent Munurinn minnkar í nýrri spá Erlent Fleiri fréttir „Ég átta mig á því að smekkleysið hefur sigrað“ Þungt högg fyrir ferðaþjónustu á Austurlandi Kenndi arabískum sveppasölumönnum um að hleypa af Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta „Hverjir tala við mömmu mína?“ Bókun 35 útskýrð á mannamáli Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sjá meira