Mike Tyson millilenti á Íslandi 3. nóvember 2010 10:43
Ferðalangar um borð í þotu Icelandair ráku upp stór augu þegar uppgötvaðist að Mike Tyson var á meðal farþega um borð í vél félagsins morgun. Tyson, sem af mörgum er talinn einn besti boxari allra tíma, var á leið til Glasgow í Skotlandi þar sem hann mun halda fyrirlestra um lífshlaup sitt sem er ansi skrautlegt, svo vægt sé til orða tekið. Hann skipti um vél í Keflavík og flaug með Icelandair til Glasgow. Með í för voru þriðja eiginkona kappans, Laikha og tveggja ára dóttir þeirra Milan, en Laikha gengur nú með áttunda barn kappans undir belti. Hjónin voru á Business Class í vélinni eins og búast má við af milljónamæringum og fylgir sögunni að Tyson hafi hagað sér vel í alla staði, en á sínum yngri árum var hann frægur fyrir ólæti af ýmsum toga. Frægt er þegar hann beit eyrað af Evander Holyfield forðum daga. Nú er öldin önnur og í viðtali við breska blaðið The Daily Record segist Tyson hlakka til að heimsækja Skotland og ætlar hann að skoða Stirling kastala sem kemur við sögu í Braveheart, bíómynd Mels Gibson. Þá ætlar hann að heimsækja Loch Lomond, en að eigin sögn eru umhverfismál og dýravernd hans helsta áhugamál nú um stundir.
Mest lesið Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Trump vill hafa Pútín og Xi út af fyrir sig Erlent Njósnastjóri Trumps leitar að kosningasvindli Erlent „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Lögregla eltist við afbrotamenn Innlent Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Innlent Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Innlent Trump segir Pútín hafa samþykkt hlé á árásum á Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Hafði aldrei heyrt um handbolta fyrr en hún kynntist handboltaóðu þjóðinni Auglýsa forskráningu í skóla í Grindavík Segir ekkert náttúrulögmál að bílasalar þurfi að velta hækkunum út í verðlagið Þrjár hlutu heiðursverðlaun Fimm handteknir grunaðir um skipulagðan þjófnað Ráðherra situr fyrir svörum, gleðitíðindi og konan sem hafði aldrei heyrt um handbolta Seinka sýningum fyrir leikinn Óbirt svör og starfslokin tekin fyrir Tæplega þrjátíu prósent Tesla Y þurftu í endurskoðun Mikil andstaða við nýtt 160 herbergja hótel á Laugarvatni Á fjórða hundrað vilja á lista Sjálfstæðisflokks í Reykjavík Hótaði málþófi vegna veiða sem tengdasonurinn stundar Svona mun Suðurlandsbraut líta út Kannast ekki við tilraunir til að stofna nýtt Vélfag Ljósið flytur í Grafarvog Launin lækkuð um 97 prósent en ekki afnumin „Við eigum ekki að vera hrædd við að taka umræðuna“ Pallborðið: Aðstoðarmenn, bæjarstjóri og viðskiptafræðingur Sjá meira