Útrás Mannvits skapar störf fyrir fjölda íslenskra verkfræðinga 12. september 2010 19:05
Stærsta verkfræðistofa landsins er í hitaveituútrás í Ungverjalandi og hefur með því skapað trygg störf fyrir fjölda íslenskra verkfræðinga, en atvinnuleysi í þeirri stétt tífaldaðist við bankahrunið. Íslendingarnir eru að reisa stærstu umhverfisvænu hitaveitu Ungverjalands. Þessi stærsta verkfræðistofa landsins hefur lítið látið á sjá, þrátt fyrir hrun en fjöldi íslenskra verkfræðinga missti vinnuna strax haustið 2008. Ein af meginstoðum Mannvits frá árinu 2006 hefur verið að flytja út þekkingu Íslendinga í nýtingu jarðhita til Ungverjalands. Eftir ítarlegar rannsóknir hefur Mannvit borað tvær holur sem nú spýta upp úr sér sjóðandi heitu vatni og verið er að bora þá þriðju. Þegar yfir lýkur verður Mannvit búið að útvega heimilum 100 þúsund Ungverja heitt vatn. Fyrsta hitaveitan verður tekin í notkun í haust og verður hún sú stærsta í Ungverjalandi sem notar alfarið umhverfisvæna orku. „Við rekum núna 15 manna verkfræðistofu í Ungverjalandi og erum búin að gera það síðan 2006. Þar eru bæði jarðfræðingar og verkfræðingar," segir Lárus Hólm, framkvæmdastjóri Mannvits í Ungverjalandi. Auk þess hefur Mannvit keypt lykiltæki í hitaveituna frá íslenskum fyrirtækjum og þannig getið af sér verkefni út fyrir Mannvit. „Það er alveg ljóst að þetta hjálpar til að skaffa verkefni fyrir ungt og velmenntað fólk starfa hjá Mannviti bæði hér heima og úti í Ungverjalandi," segir Lárus.
Mest lesið Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári Innlent Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Innlent Fangelsaður fyrir innbrot á dvalarstað Taylor-Joy Erlent Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Innlent Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Innlent „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Innlent Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Innlent Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Innlent Fleiri fréttir Uppfærslur eigi það til að stytta rafhlöðutímann Stefna á flotgufu að norrænni fyrirmynd Eldri þjóð þýðir öðruvísi húsnæði Tveggja turna tal í Reykjavík Tillaga um „hlaðborð lausna“ felld Krúnan sjálf gæti verið í hættu vegna hneykslismála Myndi kosta sveitarfélögin 300 milljónir á ári „Hvenær í ósköpunum er botninum náð á þessum vinnustað?“ Sérsveitin brást við slagsmálum á Selfossi: „Í það minnsta kylfa notuð“ Telja eðlilegt að gusurnar greiði gjald Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Rannsókn á andlátinu hófst eftir tilkynningu starfsmanns „Af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta“ Starfsmenn á bráðamóttöku með berkla en ekki taldir smitandi Snjóleysi í Reykjavík í janúar ekki einsdæmi en afar fátítt Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Sérveitin kölluð út að vopnaðri líkamsárás á Selfossi Borgarstjórn vill að börn fái frítt í Strætó Unglingaofbeldi eykst: „Slagsmál geta hreinlega endað með manndrápi“ Grafið í háspennustreng í Urriðaholti Skæð fuglaflensa í villtum fuglum á höfuðborgarsvæðinu Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Andlát í Eyjum til rannsóknar og listería á Vitatorgi Ekki staðfest að veikindi fimm tengist listeríu í salati Árekstur í Urriðaholti Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Kona kastaði flösku í höfuð manns Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rétt var að svipta Guðmund Karl lækningaleyfinu Sjá meira