Innlent

Eldur í vörubíl við Norðlingaskóla

Mynd/Stefán Karlsson
Dælubíll frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins var sendur að Norðingaskóla í Norðlingaholti á þriðja tímanum í dag eftir að tilkynnt var um eld í vörubíl við skólann. Svo virðist sem að kveikt hafi verið í rusli og öðru lauslegu sem staflað var fyrir framan bílinn. Að lokum barst eldurinn í vörubílinn en það tók slökkviliðismenn skamma stund að slökkva eldinn. Bíllinn er talsvert skemmdur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×