Aukið eftirlit við grunnskóla í borginni 26. ágúst 2010 03:00 Eftirlit Lögreglan verður með aukið eftirlit við grunn- og framhaldsskóla. Fréttablaðið/Valli
Lögreglan biður ökumenn að hafa í huga að framhalds- og grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu eru teknir til starfa að loknum sumarleyfum og því megi búast við að umferð þyngist á álagstímum. Í tilkynningu biður lögreglan ökumenn um að gera ráð fyrir að ferðatími til og frá vinnu kunni að aukast nokkuð frá því sem verið hefur. „Síðustu ár hefur slysum í umferð fjölgað í lok ágúst og í september með aukinni umferð,“ segir í tilkynningunni. Ökumenn eru af þessu tilefni hvattir til að sýna sérstaka aðgát. „Bent er á að flest umferðarslys verða við aftanákeyrslu og því mikilvægt að gæta að því að gott bil sé milli ökutækja.“ Þá segir að lögreglan muni á næstunni kappkosta að vera sýnileg á helstu umferðaræðum höfuðborgarsvæðisins og grípa inn í og aðstoða þar sem þess er þörf. Hún mun og vera við grunnskóla í umdæminu til að minna ökumenn á aðgæslu enda margir vegfarendur að stíga þar sín fyrstu spor í umferðinni. Enn fremur segir að lögreglan hafi fengið ábendingar um hraðakstur við nokkra grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og mun hún af þeim sökum vera þar með ómerkta bifreið við hraðamælingar, auk hins sýnilega eftirlits. „Þeir ökumenn sem aka of hratt miðað við aðstæður mega búast við sektum.“
Mest lesið Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Innlent Agnes var meira en bara morðingi Innlent Ellefu ára drengur lést eftir að hafa vaknað með leðurblöku á andlitinu Erlent Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Innlent Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Innlent Reyndist ekki vera hópuppsögn Innlent Siggi stormur spáir góðu veðri um allt land Veður Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Innlent Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Innlent Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Innlent Fleiri fréttir Blóðug föt á vettvangi þar sem lögreglan var með viðbragð Sambandið stormasamt og lítið útlit fyrir að gjáin sé að minnka Krefjandi sjúkraflug milli Íslands og Grænlands Ráðherra undir þrýstingi, eldsneytismarkaðurinn til skoðunar og pottum lokað Ekki í fyrsta sinn sem brugðið er á leik með liminn Vill að ríkið taki við sölu vímuefna Fimm heitum pottum lokað í Laugardalslaug Heilsustofnunin í Hveragerði fær langtímasamning Heimsótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum Reyndist ekki vera hópuppsögn Frumniðurstöður kalli á dýpri umræðu um verðlagningu olíufélaganna Tugir vilja feta í fótspor Fannars Vasaþjófar sem herja á ferðamenn engir amatörar Villti á sér heimildir sem eftirlitsmaður Ekki hægt að fullyrða að bensínlækkunin hafi skilað sér Ein hópuppsögn í júní Koma eigi í veg fyrir skólaforðun barna með samræmdum viðbrögðum Flúði á Hopp-deilibíl eftir innbrot og ók yfir göngubrú Agnes var meira en bara morðingi Saka ríkisstjórnina um svik Nemendum mismunað með ósamræmi einkunna Krefjast tafarlausrar stöðvunar hvalveiða Eltur og handtekinn í tengslum við innbrot í apótek Hopp segir mál ökumanns í höndum lögreglu Reki fyrirtæki og séu nálægt því að missa allt frá sér Klausturbleikjan fæst ekki lengur Staðfestir stækkun friðlands við Gróttu og Seltjörn Fjórtán ný félög flytja í Mannréttindahúsið Sími undir dýnu á skiptiborði tengdur innflutningi amfetamínbasa Lokuðu götu á Ólafsfirði vegna tilkynningar um skotvopn Sjá meira