Innlent

Aukið eftirlit við grunnskóla í borginni

Eftirlit Lögreglan verður með aukið eftirlit við grunn- og framhaldsskóla.
Eftirlit Lögreglan verður með aukið eftirlit við grunn- og framhaldsskóla. Fréttablaðið/Valli

Lögreglan biður ökumenn að hafa í huga að framhalds- og grunnskólar á höfuðborgarsvæðinu eru teknir til starfa að loknum sumarleyfum og því megi búast við að umferð þyngist á álagstímum. Í tilkynningu biður lögreglan ökumenn um að gera ráð fyrir að ferðatími til og frá vinnu kunni að aukast nokkuð frá því sem verið hefur.

„Síðustu ár hefur slysum í umferð fjölgað í lok ágúst og í september með aukinni umferð,“ segir í tilkynningunni. Ökumenn eru af þessu tilefni hvattir til að sýna sérstaka aðgát. „Bent er á að flest umferðarslys verða við aftanákeyrslu og því mikilvægt að gæta að því að gott bil sé milli ökutækja.“

Þá segir að lögreglan muni á næstunni kappkosta að vera sýnileg á helstu umferðaræðum höfuðborgarsvæðisins og grípa inn í og aðstoða þar sem þess er þörf. Hún mun og vera við grunnskóla í umdæminu til að minna ökumenn á aðgæslu enda margir vegfarendur að stíga þar sín fyrstu spor í umferðinni.

Enn fremur segir að lögreglan hafi fengið ábendingar um hraðakstur við nokkra grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu og mun hún af þeim sökum vera þar með ómerkta bifreið við hraðamælingar, auk hins sýnilega eftirlits. „Þeir ökumenn sem aka of hratt miðað við aðstæður mega búast við sektum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×