Innlent

Óttast verðfall vegna íslenska þorsksins

Skoskir útgerðarmenn óttast að verð á þorski á Bretlandseyjum muni lækka mikið í haust vegna aukins framboðs af þorski frá Íslandi eftir að heimilt var að veiða tíu þúsund tonnum miera af þorski á Íslandsmiðum.

Mike Park formaður Samtaka skoskra fiskframleiðenda að íslenskur þorskur muni flæða yfir Bretlandseyjar með tilheyrandi verðlækkunum.

Kílóið af þorski selst nú á 450 til 620 krónur á fiskmörkuðum í Skotlandi og óttast Park að verðið muni falla um allt að 190 krónur kílóið.

Mikil reiði ríkir líka meðal skoskra útgerðarmanna og sjómanna í garð Íslendinga vegna makrílveiða þeirra, sem þeir segja sjóræningjaveiðar.

Íslendingar séu að brjóta gerða samninga með makrílveiðum sínum. Staðreyndin er hins vegar sú að engir samningar eru milli Íslendinga og Færeyinga annars vegar og strandveiðiþjóða Evrópu hins vegar, þar sem þjóðirnar hafa ekki viljað viðurkenna Ísland og Færeyjar sem strandríki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×