Innlent

Lögreglan óskar eftir aðstoð við að finna brennuvarga

MYND/Egill

Lögreglan biðlar til almennings að aðstoða við að upplýsa íkveikju í Landakotsskóla síðastliðið miðvikudagskvöld. Þar var kveikt í garðbekk við bakhurð skólans. Lögregla segir ljóst að talsvert hafi þurft af eldfimu efni til að tendra eldinn þar sem bekkurinn var regnblautur fyrir.

Ef ekki hefði verið fyrir snarræði íbúa hefði skaðinn geta orðið verulegur að sögn lögreglunnar sem biður þann eða þá er veitt geta upplýsingar um mannaferðir í kringum Landakotsskóla um þetta leyti á nefndum tíma að hafa samband í síma 444 1100.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×