Innlent

Neytendasamtökin fagna lögum um hópmálsóknir

Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, hefur lengi barist fyrir lögum um hópmálsóknir
Jóhannes Gunnarsson, formaður Neytendasamtakanna, hefur lengi barist fyrir lögum um hópmálsóknir
Neytendasamtökin fagna því að Alþingi hafi loksins samþykkt lög um hópmálsókn en samtökin hafa hvatt til slíkrar lagasetningar um árabil. Samtökin sendu erindi til dómsmálaráðherra árin 2006 og 2008 þar sem þau hvöttu til þess að slík lög yrðu sett.

Hópmálssókn er úrræði sem er til dæmis notað þegar hópur fólks gerir skaðabótakröfu á hendur tilteknum aðila. Slíkt úrræði er mjög mikilvægt fyrir neytendur því oft er ekki er um það háar upphæðir að ræða fyrir hvern og einn að það svari kostnaði að höfða mál fyrir dómstólum. Háar upphæðir geta þó verið í húfi fyrir hópinn í heild.

„Það kom berlega í ljós eftir að upp komst um verðsamráð olíufélaganna hversu mikilvægt það er fyrir neytendur að geta höfðað sameiginlegt mál fyrir dómstólum.

Lög þessi eru löngu tímabær og mörg þau mál sem komið hafa upp eftir hrunið snúa að mörgum einstaklingum sem telja sig eiga fjárkröfu á hendur sama aðila af sama tilefni. Í stað þess að hver og einn fari fyrir dómstóla er nú hægt að höfða sameiginlegt mál," segir á vef Neytendasamtakanna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×