Innlent

Vilja mosku í Reykjavík

Claudia Overesch, formaður UVG á höfuðborgarsvæðinu.
Claudia Overesch, formaður UVG á höfuðborgarsvæðinu.
Aðalfundur Ungra vinstri grænna á höfuðborgarsvæðinu skorar á skipulagsráð Reykjavíkur að koma til móts við óskir Félags múslíma og útvega þeim lóð undir mosku. Á aðalfundinum sem fór fram í gær var Claudia Overesch kjörin formaður félagsins.

„Moska er jafn mikilvæg bygging í augum múslima og kirkjan er í augum kristinna manna og því óskiljanlegt að ráðið hafi hafnað beiðnum félagsins ítrekað," segir í ályktuninni. „Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu vilja minna fulltrúa í nýkjörnu skipulagsráði Reykjavíkurborgar á að samkvæmt stjórnarskrá Íslands ríkir trúfrelsi á Íslandi og 65. grein hennar tekur skýrt fram að bannað sé að mismuna fólki eftir trú þess. Að þeim forsendum gefnum er algjörlega ólíðandi að múslimum hafi verið neitað um bænahús í Reykjavík."

Ný stjórn

Á aðalfundinum sem fór fram í gærkvöldi í Reykjavík var Claudia Overesch, háskólanemi, kjörin formaður félagins. Einnig voru Eva Hrund Hlynsdóttir, Gísli Garðarsson, Hekla Elísabet Aðalsteinsdóttir og Hlöðver Sigurðsson kjörinn í stjórnina. Varamenn þeirra eru Helgi Hrafn Ólafsson og Kolbrún Ýrr Rolandsdóttir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×