Vandræðabarnið Christoph Schlingensief látinn SB skrifar 22. ágúst 2010 10:48 Christoph Schlingensief
Þýski listamaðurinn Christoph Schlingensief er látinn. Schlingensief var einn umdeildasti listamaður Þýskalands en samstarf hans við Klink og Bank á Íslandi vakti á sínum tíma mikla athygli. Banamein Christoph Schlingensief var krabbamein. Schlingensief hefur oft verið kallaður "enfant terrible" þýska leiklistarheimsins. Bakgrunnur hans var í myndlistinni en hann bylti leiklistinni og vakti ávalt mikla athygli; þegar hann hvatti til aftöku Helmuts Kohl, þáverandi kanslara Þýskalands, stofnaði stjórnmálaflokkinn "Change 2000" sem vildi komast á þýska þingið árið 1998, eða þegar hann smalaði ólöglegum innflytjendum í gám í Vín árið 2000 í gjörningnum Burt með útlendinga (elskið Austurríki). Schlingensief ögraði ekki bara þýskum leikhúsáhorfendum. Árið 2005 kom hann til Íslands og setti upp verk á vegum Klink og Bank og Þjóðleikhússins. Í verkinu, sem héti Animatograph, brenndi hann meðal annars eintak af Eddu og kastaði hrásalati í áhorfendur. Íslenski leikarinn Björn Thors lék í sýningunni og hélt samstarf hans við Schlingensief áfram en skömmu síðar fékk Schlingensief boð um að setja á svið Parsifal eftir Richard Wagner á óperuhátíðinni í Bayreuth. Er sá viðburður talinn einn sá áhrifamesti í þýsku listalífi síðustu ára. Schlingensief hefur lengi barist við krabbamein. Yfirvofandi dauði hans hefur orðið honum umfjöllunarefni en það er kannski til marks um álit fólks á þessu vandræðabarni að mikið hefur verið rætt og deilt um hvort veikindi hans séu raunveruleg. Á dánarbeðinum þakkaði Schlingensief sýndan samhug en stillti sig ekki um að benda á - að lífið er í raun bara skítur.
Mest lesið Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent Fleiri fréttir Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Slökkvilið í Hafnarfjörð „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Tvær þyrlur út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Sjá meira