Innlent

Gætu fengið 120 milljarða

Formaður skilanefndar Kaupþings situr í stjórn danska bankans FIH. Skilanefndin hefur sett bankann í söluferli.Fréttablaðið/GVA
Formaður skilanefndar Kaupþings situr í stjórn danska bankans FIH. Skilanefndin hefur sett bankann í söluferli.Fréttablaðið/GVA
Sjö lífeyrissjóðir og breskur einkaframtakssjóður hafa lagt fram tilboð í danska fyrirtækja- og fjárfestingarbankann FIH.

Danska dagblaðið Börsen sagði í gær verðmiðann á FIH liggja á milli fjögurra til sex milljarða danskra króna. Það jafngildir allt að 120 milljörðum króna.

KB banki keypti FIH fyrir 7,1 milljarð danskra króna, jafnvirði 84 milljarða króna á þávirði, í júní árið 2004. Hann er nú í eigu skilanefndar Kaupþings. Frá því að skilanefndin tók reksturinn yfir eftir fall Kaupþings hefur hún breytt skipulagi bankans og lagt niður óarðbærar deildir. Hagnaður FIH nam 102,8 milljónum danskra króna, jafnvirði tveggja milljarða króna, á öðrum ársfjórðungi. Til samanburðar nam hann aðeins tæpum sex milljónum á sama tíma í fyrra. Auknar þóknanatekjur og lægri afskriftir skýra betri afkomu.

Seðlabanki Íslands tók veð í FIH gegn veitingu 500 milljóna evra neyðarláns til Kaupþings haustið 2008. Það stendur nú í 75 milljörðum króna. Í stjórn FIH sitja Steinar Þór Guðgeirsson, formaður skilanefndar Kaupþings, og Haukur Benediktsson, formaður Eignasafns Seðlabanka Íslands. Skilanefnd Kaupþings vildi ekki tjá sig um málið í gær. - jab



Fleiri fréttir

Sjá meira


×