Innlent

Kuldakast á landinu

Það er kuldalegt um að litast í dag.
Það er kuldalegt um að litast í dag. Mynd / Vilhelm Gunnarsson

Kuldalegt var í morgun í flestum landshlutum og norðanlands hafa fjöll gránað. Þannig var Hlíðarfjall ofan Akureyrar grátt niður undir skíðahótel, að sögn lögreglu, en fimm stiga hiti var á Akureyri klukkan níu í morgun.

Þar í bæ var raunar ausandi rigning, sem og á Húsavík. Þar sáu menn ekki til fjalla sökum þoku en töldu víst að snjóað hefði í fjöll, enda skítkalt, eins og það var orðað.

Lágskýjað var einnig á Ísafirði og því sáu menn ekki hvort fjöll höfðu gránað en í bænum var rok og rigning.

Lægsti hiti í byggð í nótt var á Hellu á Rangárvöllum, 1,7 gráða, en á tíunda tímanum var kaldasta býlið Brú á Jökuldal, tæplega þrjár gráður.

Lægsti hiti í byggð í nótt var á Hellu á Rangárvöllum, 1,7 gráða, en nú á tíunda tímanum var kaldasta býlið Brú á Jökuldal, tæplega þrjár gráður.

Hlýjast var suðaustanlands, undir Vatnajökli, en 12,5 gráður mældust í Skaftafelli og á Fagurhólsmýri klukkan níu og 12 gráður á Kambanesi við Stöðvarfjörð. Í Reykjavík var átta stiga hiti klukkan níu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×