Innlent

Eftirlýstur innan Schengen vegna skattsvika

Hvorki hefur fundist tangur né tetur af 270 milljónum króna, sem sviknar voru út.
Hvorki hefur fundist tangur né tetur af 270 milljónum króna, sem sviknar voru út.
Íslenskur karlmaður er eftirlýstur á Schengen-svæðinu vegna gruns um þátttöku hans í fjársvikamálinu, þar sem sviknar voru út um 270 milljónir króna í formi endurgreidds virðisaukaskatts. Hvorki finnst tangur né tetur af þessum fjármunum, samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins. Ljóst er að þeir höfðu verið lagðir inn á reikning en teknir út í reiðufé, smáum upphæðum í senn, þannig að ekki er um neinar millifærsluslóðir að ræða.

Héraðsdómur Reykjavíkur framlengdi í fyrradag gæsluvarðhald yfir einum þeirra sex sem handteknir voru í tengslum við rannsókn lögreglu á málinu. Hjá manninum sem úrskurðaður var í áframhaldandi gæslu til næstkomandi miðvikudags fundust hátt í tólf kíló af hassi þegar lögregla gerði þar húsleit.

Sex manns eru því áfram í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknarinnar, tvær konur og fjórir karlmenn, þar af einn starfsmaður Ríkis­skattstjóra, sem grunaður er um að hafa aðstoðað við fjársvikin. Þetta fólk hefur meira og minna komið við sögu hjá lögreglu.

Maðurinn sem lögregla leitar nú að er talinn dvelja í Suður-Ameríku en þangað mun hann hafa haldið skömmu áður en upp komst um fjársvikin. Hann hefur komið við sögu hjá lögreglu áður. Komi hann inn á Schengen-svæðið verður hann handtekinn. - jss



Fleiri fréttir

Sjá meira


×