Innlent

Lést í fjórhjólaslysi á Grænlandi

Íslenskur karlmaður lést á Grændlandi í gærkvöldi. Maðurinn var starfsmaður Ístaks en fyrirtækið er að byggja virkjun á svæðinu Pakitsoq sem er 60 kílómetrum frá bænum Ilulissat á vesturströnd Grænlands.

Slysið varð þegar maðurinn var að aka fjórhjóli upp á fjall ofan við virkjunarlónið. Þar er talið að hann hafi missti stjórn á hljólinu og orðið undir því. Rannsókn á slysinu stendur enn yfir.

Erfiðar aðstæður eru á svæðinu og þurftu björgunarmenn að ganga torfæra leið að slysstað. Kallað var á björgunarþyrlu en maðurinn var látinn þegar hún kom.

Kolbeinn Kolbeinsson, framkvæmdastjóri Ístaks segir að nú sé unnið að því að senda fólk til að veita vinnufélögum mannsins áfallahjálp. Ekki er hægt að greina frá nafni mannsins að svo stöddu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×