Minna ekið, drukkið og reykt en spáð var 22. september 2010 07:00 Í skýrslu fjármálaráðuneytisins um greiðsluafkomuna kemur fram að útgjöld til efnahags- og atvinnumála hafi dregist saman um 3,5 milljarða króna frá í fyrra. Engu að síður eru útgjöld til málaflokksins 5,4 milljörðum undir áætlunum, þ.e. lægri en heimildir fjárlaga leyfa, en þau námu rúmlega 33 milljörðum á tímabilinu. Eitthvað er um að framkvæmdir hafi verið færðar til innan ársins. fréttablaðið/vilhelm
Ríkissjóður var rekinn með 75,6 milljarða króna halla á fyrstu sjö mánuðum ársins. Greidd gjöld námu 318 milljörðum og innheimtar tekjur 261 milljarði. Þar munar 57 milljörðum. Að teknu tilliti til áhrifa rekstrartengdra eigna og skulda ríkisins, sem voru neikvæð um átján milljarða, fæst hin eiginlega staða, svonefnt handbært fé frá rekstri, sem nemur þessum 75,6 milljörðum. Í yfirliti fjármálaráðuneytisins um greiðsluafkomu ríkissjóðs fyrstu sjö mánuði ársins kemur fram að innheimtar tekjur voru rúmum sautján milljörðum króna hærri en áætlun fjárlaga gerði ráð fyrir. Stafar frávikið að mestu af hagnaði ríkissjóðs af samkomulagi um kaup á íslenskum skuldabréfum af Seðlabankanum í Lúxemborg. Tekjur af tekjuskatti einstaklinga námu 51,3 milljörðum. Það er aukning um tíu prósent frá fyrra ári en tæpum sex prósentum undir áætlun. Fyrirframgreiðsla á tekjuskatti lögaðila nam 7,1 milljarði sem er samdráttur upp á rúm 22 prósent frá í fyrra en svo til á áætlun ársins. Í heild voru tekjur ríkissjóðs af sköttum, tollum og tryggingagjaldi 224 milljarðar fyrstu sjö mánuði ársins. Það er rúmum 27 milljörðum meira en í fyrra og tæpum fjórtán prósentum meira en áætlað var. Virðisaukaskattur nam 70 milljörðum en í fjárlögum var reiknað með að hann yrði rúmir 60 milljarðar á tímabilinu. Vörugjöld af bensíni og olíu hækkuðu talsvert milli ára en voru undir tekjuáætlun. Sama á við um tekjur af áfengis- og tóbaksgjaldi. Þær jukust frá fyrra ári en voru lægri en áætlað var. Útgjöld ríkisins fyrstu sjö mánuði ársins jukust um rúma níu milljarða frá árinu 2009. Engu að síður voru þau talsvert undir fjárheimildum ársins í ár. Að almannatryggingum og heilbrigðis- og velferðarmálum slepptum voru vaxtagreiðslur sá liður sem hvað þyngst vó á útgjaldahliðinni. Rúmir 50 milljarðar króna fóru til greiðslu vaxta á tímabilinu. Vaxtagreiðslurnar hækkuðu um sextán milljarða milli ára en voru þrátt fyrir það lægri en áætlanir gerðu ráð fyrir.bjorn@frettabladid.is
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Fleiri fréttir Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Sjá meira