Innlent

Önnur mál ekki til umræðu á Alþingi

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Bjarni Benediktsson óskaði eftir því að önnur mál yrðu tekin til umræðu á meðan að þingmannanefnd ræðir ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum. Mynd/ GVA.
Bjarni Benediktsson óskaði eftir því að önnur mál yrðu tekin til umræðu á meðan að þingmannanefnd ræðir ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum. Mynd/ GVA.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, fór í dag fram á það að umræður um það sem hann telur vera brýn hagsmunamál þjóðarinnar færu fram á þingi á meðan þingmannanefnd Atla Gíslasonar fjallar um ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum. Í tilkynningu frá Sjálfstæðisflokknum kemur fram að beiðninni hafi verið hafnað.

Á meðal þess sem Bjarni fór fram á að rætt yrði eru niðurstöður Hæstaréttar í gengistryggingarmálum, niðurstöður nefndar um Magma-málið og úrskurður héraðsdóms um ákvörðun umhverfisráðherra vegna virkjanamála í neðri-Þjórsá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×