Innlent

Samgönguráðherra tekur sér skóflu í hönd

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Framkvæmdir við breikkun Suðurlandsvegar, Fossvellir - Draugahlíðar, hefjast með hátíðlegri athöfn í dag. Ögmundur Jónasson samgönguráðherra og Hreinn Haraldsson vegamálastjóri verða viðstaddir við þetta tækifæri og segir í tilkynningu frá Vegagerðinni að líklegt sé að Ögmundur muni grípa sér skóflu í hönd. Athöfnin mun fara fram klukkan þrjú nokkuð fyrir vestan Litlu kaffistofuna og norðan við vegamót við Bolaöldu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×