Innlent

Vantraust ef tillögurnar fara í allsherjarnefnd

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Árni Þór Sigurðsson telur það vantraust á nefnd Atla ef málið fer ekki í þingmannanefnd. Mynd/ Valgarður.
Árni Þór Sigurðsson telur það vantraust á nefnd Atla ef málið fer ekki í þingmannanefnd. Mynd/ Valgarður.
Árni Þór Sigurðsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, telur að ef þingsályktunartillögum um ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum fyrir brot á ráðherraábyrgð verði ekki vísað til þingmannanefndar Atla Gíslasonar feli það í sér vantraust á störf nefndarinnar.

Fyrri umræðu um þingsályktunartillögurnar lauk á Alþingi í gær en ágreiningur stendur um það hvort þau eigi nú að fara í allsherjarnefnd eða Atlanefndarinnar. Þingmenn VG telja að ef málið fari í allsherjarnefnd sé það tilraun til að drepa málinu á dreif og óttast að það muni þá ekki klárast fyrir þinglok í næstu viku.

Bjarni Benediktsson sagði á Alþingi í morgun að þingmannanefndinni hafi ekki tekist að vera einhuga varðandi þingsályktunartillögurnar. Ekki sé um vantraust á Atlanefndina að ræða. „En það verður bara að hafa það ef formaður þingmannanefndarinnar, Atli Gíslason, lítur svo á," sagði Bjarni. Hann benti jafnframt á að þingmannanefndin væri þegar búin að gera upp hug sinn til málsins og vildi styðja það óbreytt.

„Þingmenn Framsóknarflokksins styðja að þetta fari til þingmannanefndarinnar, sagði Gunnar Bragi Sveinsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, og undir það tók flokksbróðir hans, Höskuldur Þórhallsson.

Róbert Marshall, þingmaður Samfylkingarinnar, og formaður allsherjarnefndar sagðist vilja að málið færi í báðar nefndir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×