Innlent

Þrír Íslendingar með gervifætur í haldi í Ísrael

Miðbær Tel Aviv
Miðbær Tel Aviv
Þrír Íslendingar og einn Suður-Afríkumaður eru í haldi í Ísrael en þeir voru stöðvaðir á flugvellinum í Tel Aviv í dag. Þeim hefur ekki enn verið hleypt inn í landið. Þetta kom fram í sex fréttum RÚV. Þeir munu vera á leið með gervifætur á Gasa-svæðið.

Förin mun vera hluti af samstarfsverkefni OK Prosthetics og félagsins Ísland-Palestína.

Sveinn Rúnar Hauksson, formaður Ísland-Palestína, er í Jerúsalem og sagði í samtali við RÚV að þeir séu ekki í varðhaldi. Þeim sé einungis haldið á flugvellinum og vegabréfin tekin af þeim. „Þetta er ákaflega mikill dónaskapur," sagði hann.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×