Innlent

Stefán Sölvi fjórði sterkasti maður heims

Stefán Sölvi er hér fyrir miðju ásamt öðrum íslenskum kraftajötnum
Stefán Sölvi er hér fyrir miðju ásamt öðrum íslenskum kraftajötnum

Sterkasti maður Íslands, aflraunamaðurinn Stefán Sölvi Pétursson, hafnaði í fjórða sæti í keppninni Sterkasti maður heims 2010. Keppnin var haldin í borginni Sun City í Suður-Afríku.

Þrjátíu sterkustu mönnum heims var boðið á mótið. Er þetta í fyrsta sinn í 11 ár sem Íslendingur nær þessum árangri í keppninni.

Riðlakeppni lauk í liðinni viku en endanleg úrslitakeppni fór fram í dag.

Jón Páll Sigmarsson og Magnús Ver Magnússon sigruðu þessa keppni fjórum sinnum hvor en Stefán Sölvi er enn ungur, aðeins 24 ára, og stefnir á sigur í framtíðinni fyrir Íslands hönd.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×