Innlent

Ákærurnar fara til umfjöllunar í þingmannanefnd

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Málið fer til þingmannanefndarinnar. Mynd/ GVA.
Málið fer til þingmannanefndarinnar. Mynd/ GVA.
Þingsályktunartillögum um ákærur gegn fjórum ráðherrum sem störfuðu í aðdraganda bankahrunsins verður vísað til þingmannanefndar Atla Gíslasonar. Þetta var samþykkt með 38 atkvæðum gegn 16 á Alþingi í morgun.

Tvær tillögur komu fram, önnur frá Atla Gíslasyni, um að málið færi aftur til þingmannanefndarinnar. Hin frá Ragnheiði Elínu Árnadóttur, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, um að málið færi til allsherjarnefndar.

Þingmenn VG lögðust gegn því að málið færi til allsherjarnefndar og töldu að með því yrði málinu drepið á dreif.






Tengdar fréttir

Vantraust ef tillögurnar fara í allsherjarnefnd

Árni Þór Sigurðsson, þingflokksformaður Vinstri grænna, telur að ef þingsályktunartillögum um ákærur gegn fyrrverandi ráðherrum fyrir brot á ráðherraábyrgð verði ekki vísað til þingmannanefndar Atla Gíslasonar feli það í sér vantraust á störf nefndarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×