Innlent

Draumurinn enn lokaður og í rannsókn

Fastakúnnar Draumsins hafa komið þar að lokuðum dyrum í rúma fjóra mánuði og útlit er fyrir að svo verði enn um sinn – jafnvel til frambúðar.Fréttablaðið/gva
Fastakúnnar Draumsins hafa komið þar að lokuðum dyrum í rúma fjóra mánuði og útlit er fyrir að svo verði enn um sinn – jafnvel til frambúðar.Fréttablaðið/gva
Lögregla hefur enn til rannsóknar meint lögbrot Júlíusar Þorbergsson, kaupmanns í Draumnum við Rauðarárstíg. Draumurinn er enn lokaður og verður ekki opnaður á ný nema með úrskurði dómara.

Júlíus, oftast kallaður Júlli í Draumnum, var handtekinn um miðjan júní og úrskurðaður í gæsluvarðhald eftir að á annað hundrað töflur af lyfseðilsskyldum lyfjum, nokkuð af kókaíni og um fimmtán milljónir króna í reiðufé fundust við húsleit í Draumnum og á heimili hans. Draumnum var jafnframt lokað.

Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn segir að úrskurður hafi fengist frá dómsmálaráðuneytinu fyrir ótímabundinni lokum verslunarinnar og hún verði því ekki opnuð aftur nema Júlíus kæri úrskurðinn til dómstóla og fái honum hnekkt.

Sjálfur segist Júlíus ætla að bíða eftir að niðurstaða fáist í málið áður en hann aðhefst nokkuð frekar. „Ég tek þessu bara rólega.“ segir Júlíus, sem hefur alla tíð neitað því að hafa selt fíkniefni og borið að milljónirnar hafi verið í eigu annars manns. „Ég er enginn glæpamaður,“ segir hann.

Júlíus segir lokunina hafa haft mikil áhrif á möguleika hans til að afla sér tekna. Í sumar hafi hann tínt ánamaðka og selt og nú safni hann dósum. Þá sýtir hann vörur fyrir milljónir sem hann hafi þurft að henda. Einna verst sé þó að glata bókinni þar sem hann skrifaði skuldir fastakúnna sinna, sem hlaupi á milljónum. Lítil von sé nú til að þær fáist greiddar. - sh



Fleiri fréttir

Sjá meira


×