Innlent

Ráðið frá sjósundi vegna hættu á saurgerlamengun

Sjósund nýtur mikilla vinsælda
Sjósund nýtur mikilla vinsælda Mynd: Vilhelm Gunnarsson
Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur ráðleggur sjósundsfólki að fara ekki í sund í Nauthólsvík dagana 27.- 29. september. Ástæðan er möguleg saurgerlamengun vegna viðgerða á dælustöð fráveitukerfisins við Hafnarbraut í Kópavogi.

Viðgerðir á dælustöð fráveitukerfisins við Hafnarbraut í Kópavogi standa yfir dagana 27.-28. september og skapar það hættu á að saurgerlamengun í sjó verði yfir viðmiðunarmörkum á framkvæmdatíma og einum degi betur.

Heilbrigðiseftirlitið í Reykjavík vill af þessum sökum ráðleggja fólki frá því að fara í sjósund í Nauthólsvík þessa þrjá daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×