Innlent

Handtóku mann fyrir kannabisræktun

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Tvítugur karlmaður var handtekinn á Akureyri í gær, grunaður um akstur bifreiðar undir áhrifum fíkniefna. Í framhaldi af því var gerð húsleit á heimili hans þar sem hald var lagt á um 20 grömm af kannabisefnum auk tækja og tóla til neyslu þeirra. Auk þess kom í ljós að maðurinn hafði verið að rækta kannabis í íbúð sinni en í litlum mæli þó. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni var manninum sleppt að lokinni yfirheyrslu og telst málið upplýst.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×