Stakk ekki blóðugum fingri í munn lögregluþjóns Valur Grettisson skrifar 29. október 2010 11:25 Lögreglumenn. Myndin er úr safni.
Karlmaður var sýknaður í dag í Héraðsdómi Reykjavíkur af því að hafa stungið blóðugum fingri í munn lögregluþjóns. Maðurinn sem var ákærður fyrir hættulegt brot á sóttvarnarlögum, reyndist vera smitaður af lifrabólgu C. Það var í maí á síðasta ári sem lögreglan var kölluð að heimili mannsins vegna þess að maðurinn hefði hótað nágranna sínum með sverði. Í skýrslu lögreglunnar kemur fram að er lögreglumenn knúðu dyra á íbúð mannsins hafi hann komið út í glugga og neitað að hleypa þeim inn. Lögreglan sparkaði þá hurðina upp. Þegar inn kom var ekkert sverð sjáanlegt og neitaði maðurinn að vísa á það. Hann var í annarlegu ástandi og virtist vera undir áhrifum lyfja eða fíkniefna. Nágranninn vísaði á „sverðið", sem reyndist vera hnífur, í skúffu í eldhúsi. Granninn upplýsti að maðurinn hefði átt í einhverjum útistöðum við nágranna sína. Lögreglan tók þá eftir því að maðurinn var með áverka á fingri en það blæddi úr löngutöng hægri handar. Þegar lögreglumaðurinn spurði manninn hvort hann hefði slasað sig brást hann hinn versti við, reis á fætur og átti að hafa sett fingurinn í andlit og upp í munn lögreglumannsins. Lögreglumaðurinn var blóðugur á vinstri kinn og fann að auki fyrir blóðbragði í munni. Maðurinn neitaði alfarið sök. Báðir lögreglumennirnir gátu ekki fullyrt að fingurinn hefði farið upp í munninn á lögreglumanninum. Dómurinn útilokar ekki að blóðið hafi borist í munn lögreglumannsins þegar maðurinn strauk fingri sínum um andlit hans. Var hann því sýknaður. Þess má geta að lögreglumaðurinn smitaðist ekki af lifrabólgu.
Mest lesið „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Innlent „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Innlent Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Innlent Hafi komið líki stúlkunnar fyrir í ferðatösku Erlent Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný Innlent Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Innlent Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Innlent Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Innlent Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Innlent „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ Innlent Fleiri fréttir Fær ekki áheyrn í Hæstarétti eftir að hann kallaði konu „svertingjatussu“ Þorgerður varar ESB við nýjum aðildarskilmálum Rigningu spáð í Reykjavík alla vikuna og fólk á leið austur „Ræddum að þetta gæti verið kveðjugjöf“ Erfiðar aðstæður þegar göngumaður slasaðist á leið í Hrafntinnusker Reglugerðin rétt ókomin: „Auðvitað er þetta áfellisdómur yfir réttarframkvæmd á Íslandi“ Þór með Bandero í gæslu á hvalamiðum „Held að foreldrar hafi bara tekið þetta til sín“ „Farðu nú að hætta þessu þvaðri viðrinið þitt“ Fresta framkvæmdum á brúnni vegna vætutíðar Úlfar vill verða lögreglustjóri á ný „Ef þessum skipum verður ógnað þá verður brugðist við því“ Þór kominn að Bandero og fylgir honum eftir Segir ríkisvaldið hafa fallið á lyfjaprófi Væta með köflum í flestum landshlutum Handtekinn ölvaður á rafhlaupahjóli Bræður hvor sínum megin við hagræðinguna í borginni Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Öll híbýli fullbókuð og hesthúsin verða stappfull Selja mannvirki bæjarins á flugvellinum á tólf milljónir Sérsveitarmenn um borð í Þór „Það koma bara færri“ Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Bandero byrjað að senda Landhelgisgæslunni staðsetningu sína „Við sváfum ekkert, dauðhræddir á refresh-takkanum alla helgina“ „Þau tala stundum um að við ælum í gegnum puttana“ „Ætlum rétt að vona að þessi tímalína standist“ Hafa ekki gefið Landhelgisgæslunni upp staðsetningu Bandero Boðar frekari niðurskurð síðar í sumar Gefa ekki upp staðsetningu sína og Hildur boðar frekari niðurskurð Sjá meira