Júlíus Vífill: Samráð algjör nauðsyn 3. nóvember 2010 15:22 Júlíus Vífill Ingvarsson.
Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að ekkert samráð eigi að hafa um samstarf skóla borgarinnar við trúar og lífskoðunarfélög. Tillögu sjálfstæðismanna um að koma á sérstökum starfshópi í málinu var hafnað af meirihluta mannréttindaráðs fyrr í dag. „Við lögðum til að það yrði farið út í samráð sem er auðvitað algjörlega nauðsynlegt og grunnur að því að hægt sé að vinna tillögu sem sátt getur orðið um," segir Júlíus í samtali við Vísi og þar segist hann eiga við samráð með foreldrum, skólastjórnendum, nemendum, fræðimönnum, kirkjunni og öðrum trúfélögum og lífsskoðunarhópum. Júlíus segir að tillaga sjálfstæðismanna hafi verið með svipuðum hætti og gert var þegar hann var formaður menntaráðs en þá var unnin skýrsla um samstarf skóla við kirkjuna og aðra lífsskoðunarhópa. „Út úr því komu mjög góðar og skynsamlegar tillögur en það var auðvitað aldrei ætlun okkar að fara að miðstýra því með boðvaldi hvernig þessum málum á að vera háttað úti í skólunum," segir Júlíus og bendir á að í skólum borgarinnar séu 20 þúsund börn. „Við eigum ekki að segja skólum hvernig þeir eiga að haga sér í þessum málum því skólarnir eru svo ólíkir. Það verður að leggja mat á það á hverjum stað hvernig að þessu er staðið." Júlíus segir augljóst að meirihlutanum hafi brugðið við þau miklu viðbrögð sem tillagan um að banna aðkomu trúfélaga að skólum fékk upphaflega. „Og það er ekki til marks um góð vinnubrögð að rusla saman nýrri tillögu á aukafundi og senda hana síðan til umfjöllunar í öðrum pólitískum ráðum borgarinnar," segir hann og bætir við að niðurstaða þeirrar málsmeðferðar sé gefin fyrirfram. „Þetta er ekkert samráð, þetta er bara eins og hver önnur töfrabrögð og það er komið fram við skólastjórnendur, foreldra, nemendur og trúfélög af talsverðri lítilsvirðingu."
Mest lesið Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Mótorhjól og bíll skullu saman Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Sjötugur maður tapað hundrað og átta milljónum til fjárkúgara Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent Fleiri fréttir Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Kominn til Akureyrar eftir alvarlegt slys á skemmtiferðaskipi „Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu“ „Gott og vel við skulum trúa ráðherranum“ Utanríkisráðherra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða Hart tekist á um ESB Burðardýr Stúarts litla dæmd í sex ára fangelsi Sjá meira