Innlent

Heimasíða umboðsmanns skuldara í gagnið

Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara.
Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara. Mynd / Valgarður Gíslason

Vefur umboðsmanns skuldara, www.ums.is, er nú kominn í loftið. Á vefnum er m.a. hægt að finna upplýsingar um þá ráðgjöf sem embættið veitir almenningi endurgjaldslaust. Þá er hægt að finna upplýsingar, leiðbeiningar og umsóknareyðublöð fyrir greiðsluaðlögun, tímabundna greiðsluaðlögun fasteignaveðkrafna og tímabundin úrræði fyrir þá sem eiga tvær fasteignir til heimilisnota.

Þá er vakin sérstök athygli á því að á vefsíðunni er með einföldum hætti hægt að komast í netsamtal við starfsfólk umboðsmanns skuldara, þar sem fólk getur, á afgreiðslutíma stofnunarinnar, fengið ráðgjöf og upplýsingar um greiðsluerfiðleikaúrræði.

Umboðsmaður skuldara er Ásta Sigrún Helgadóttir.

Hér er beinn hlekkur á síðuna.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×