Innlent

Perlan byrjuð að dæla í Landeyjahöfn

MYND/Óskar P. Friðriksson

Sanddæluskipið Perlan, sem legið hefur í Vestmannaeyjahöfn undanfarna daga, hóf í morgun dælingu úr Landeyjahöfn og er útlit fyrir að verkið geti gengið vel, þar sem spáð er norðlægum áttum næstu daga.

Þá stendur vindur af landi og alda gengur ekki upp á ströndina eins og verið hefur. Ef allt gengur að óskum getur Herjóflur hafið siglingar til Landeyjahafnar eftir tvo til þrjá daga, en hann siglir nú til Þorlákshafnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×