Trukkarnir koma á Búðarháls Kristján Már Unnarsson skrifar 29. október 2010 19:17
Ístak flutti í dag fyrstu tæki sín að Búðarhálsi. Óvissa ríkir þó áfram um hvenær virkjunarframkvæmdir þar komast á fullt skrið því verksamningurinn er háður því að Landsvirkjun fái lán á hagstæðum kjörum. Ístaksmenn stefna að því að trukkarnir verði komnir í grjótflutninga á hálendinu eftir viku. Ekki verður þó hægt að segja að þar með fari framkvæmdir á fullt því Ístak hefur aðeins heimild til að vinna takmörkuð undirbúningsverk fyrir allt að 500 milljónir króna, eða sem svarar 5% af um 10 milljarða verksamningi. Framhaldið er háð því að lán fáist á viðunandi kjörum til framkvæmdanna. Fjárfestingarbanki Evrópu hefur hins vegar ítrekað frestað því að afgreiða slíkt lán til Landsvirkjunar, með óformlegum skilaboðum um að frestunin tengist Icesave-deilunni. Landsvirkjunarmenn binda þó vonir við að lánin fáist fyrir áramót. Það myndi þýða að Ístak yrði með allt að 80 manns í vinnu við Búðarháls í vetur. Að öðrum kosti verður verktakinn bara með um 40 manns um skamman tíma fram yfir áramót.
Mest lesið Bandamaður Trumps skotinn til bana á fjölmennum viðburði Erlent Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Innlent Quang Le stefnir Landsbankanum Innlent Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Innlent Trump segir öfga-vinstrið bera ábyrgð á morðinu Erlent Biður þingmenn að gæta orða sinna Innlent Fékk milljón vegna afmælis kattarins Innlent Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Innlent „Ísland á betra skilið“ Innlent Faðirinn ákærður fyrir að beita Oscar ofbeldi Erlent Fleiri fréttir Líkamsárás og skartgripaþjófnaður Sakborningur í 28 málum sendur úr landi Kosti þrjár milljónir fyrir alþjóðlega nemendur að læra á Íslandi Quang Le stefnir Landsbankanum Fékk milljón vegna afmælis kattarins Ríkisstjórnin feli sig á bak við mistök þeirrar fyrri Um 100 þúsund lömbum slátrað hjá SS á Selfossi „Ísland á betra skilið“ Biður þingmenn að gæta orða sinna Stefnuræða forsætisráðherra á dagskrá í kvöld Óásættanlegt hversu margir falla fyrir eigin hendi Áhyggjuefni að menn missi stjórn á atburðarásinni Fundu fyrir jarðskjálfta í Hveragerði Kærður fyrir fjársvik fyrir að neita að borga Einbeittur brotavilji og óásættanlegur fjöldi sjálfsvíga Ellefu vilja vera ritstjóri Kveiks Samfélagslega mikilvæg innviðafjárfesting að efla íslenska tungu Alþingi efnir til stefnuræðubingós Stúdentar klóra sér í kollinum yfir hækkun Loga Húsbrot á höfuðborgarsvæðinu: Oft sama fólkið sem brýst ítrekað inn í fleiri fjölbýlishús „Sérstök“ ræða forseta sem hafi hoppað á umræðuvagninn Segir gott að brugðist var við með valdi og NATO þurfi að sýna styrk Stilltu til friðar á óformlegum fundi í gær Talinn ógn við samfélagið og vísað úr landi Hugsanlega verið að reyna á einingu NATO-ríkja Hrókeringar í þingnefndum og Grímur segir af sér Rússneskir drónar í pólskri lofthelgi og „sérstök“ ræða forseta Íslands Tekist á um hvort framlag í séreign sé launagreiðsla Mikill meirihluti óánægður með leigubílamarkaðinn „Ég hef alveg heyrt mun verri hugmyndir en þetta“ Sjá meira