Telja ný gjaldþrotalög engu breyta Þorbjörn Þórðarson skrifar 29. október 2010 18:58
Frumvarp til gjaldþrotalaga breytir litlu fyrir gjaldþrota heimili að mati lögmanna. Fjármálaráðherra segir að frumvarpið verða betrumbætt í meðförum þingsins. Fyrningarfrestur krafna er mismunandi og fer það eftir eðli krafnanna. T.d fyrnast skaðabótakröfur vegna líkamstjóns á tíu árum, eða mun lengur en almennar fjárkröfur. Þau frumvarpsdrög sem nú liggja fyrir um breytingar á lögum um gjaldþrotaskipti miða að því að stytta fyrningarfrest á þeim kröfum sem ekki fást greiddar við gjaldþrotaskipti. Í frumvarpinu er lagt til að fyrningartími allra krafna sem lýst er í þrotabú verði sá sami, tvö ár, án tillits til þess um hvers konar kröfu er að ræða. Samkvæmt lögunum getur kröfuhafi þrotamanns hins vegar höfðað viðurkenningarmál og rofið fyrningu kröfunnar ef hann getur sýnt fram á að hann hafi sérstaka hagsmuni af því að slíta aftur fyrningu og ef hann getur sýnt fram á að fullnusta geti fengist í kröfuna á nýjum fyrningarfresti. Ýmsir hafa gagnrýnt frumvarpið fyrir þetta ákvæði og segja að í núverandi mynd gangi frumvarpið ekki nægilega langt. Sérfræðingar í gjaldþrotarétti, sem fréttastofa ræddi við í dag, segja að frumvarpið breyti ekki mjög miklu fyrir gjaldþrota einstaklinga því í raun geti kröfuhafi fært rök fyrir því að hann hafi alltaf sérstaka hagsmuni af því að slíta fyrningu ef krafan er ógreidd. Fjármálaráðherra segir að skerpt verði á þessum hugtökum í frumvarpinu í meðförum þingsins, þannig að það verði skýrt hvenær heimilt verði að rjúfa fyrningu. „Ég held að frumvarpið sé nokkuð góð lending, það þarf að sjálfsögðu að fara vel yfir skilgreiningar á því hvað þarf að liggja til grundvallar til að dómstólar fallist á að rjúfa fyrningarfrestinn. Þetta á að vera þröngur og vel skilgreindur farvegur. Það verður væntanlega gert í meðförum þingsins að fara vel yfir það og hafa lögskýringarnar eins skýrar og mögulegt er. Það er ekki meiningin að menn geti hreinsað hvað sem er af sér með gjaldþrotum, t.d skaðabætur eða skuldir vegna refsiverðrar háttsemi o.s.frv. Þarna verður að finnast málamiðlun milli þessara sjónarmiða," segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira