Vildu að Íslandsbanki þvingaði starfsmenn í yfirheyrslur Sigríður Mogensen skrifar 29. október 2010 19:05
Lögmaður slitastjórnar Glitnis lagði að stjórnendum Íslandsbanka að grípa til aðgerða vegna starfsmanns bankans sem neitaði að koma í skýrslutöku hjá slitastjórn í tengslum við hundruð milljarða skaðabótamál. Fréttastofa hefur tölvupósta sem staðfesta þetta undir höndum. Fréttastofa greindi frá því fyrir skömmu að Íslandsbanki hafi tilkynnt Fjármálaeftirlitinu um afskipti slitastjórnarinnar af starfsfólki bankans. Sú stefna hefur verið mörkuð innan Íslandsbanka að hvetja starfsmenn til að taka þátt í hverskyns skýrslutökum og rannsóknum á orsökum á falli Glitnis. Þá leggur bankinn starfsmönnum sem það gera til lögmannsaðstoð allt að 10 klukkustundum. Í bréfi frá yfirlögfræðingi Íslandsbanka til Fjármálaeftirlitsins kemur fram að starfsmönnum sé frjálst að fara að ráðum lögmanns síns við slíkar skýrslutökur án ótta við að það hafi áhrif á starfsframa þeirra hjá Íslandsbanka. Yfirlögfræðingur Íslandsbanka átti fund með Steinunni Guðbjartsdóttur, formanni slitastjórnar, Árna Tómassyni, formanni skilanefndar og Michael Miller, lögmanni sem starfar fyrir slitastjórnina um þessi mál í byrjun september. Þar setti lögmaður slitastjórnar fram þá ósk að Íslandsbanki breytti stefnu sinni og áskildi sér rétt til að nýta ráðningarsamband sitt við starfsmenn til að þvinga þá til skýrslugjafar þó að hún kunni að ganga gegn ráðum lögmanns starfsmannsins. Þann 5. september sendi lögmaður slitastjórnar Glitnis yfirlögfræðingi Íslandsbanka síðan bréf þar sem hann greindi frá því að tiltekinn starfsmaður bankans hefði neitað að koma í skýrslutöku vegna einkamálsins í New York og fór þess á leit við stjórnendur Íslandsbanka að þeir hugleiddu til hvaða aðgerða bankinn gæti gripið gagnvart starfsmanninum til þess að fá hann til samstarfs. Afrit af bréfinu var sent stjórnarformanni Íslandsbanka, Friðriki Sophussyni. Í bréfi yfirlögfræðings Íslandsbanka til formanns slitastjórnar segir að Íslandsbanki muni ekki miðað við núverandi stefnu sína leggja að starfsmanninum að koma í skýrslutöku hjá slitastjórn, enda sé það fjarri starfsskyldum hans.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Innlent Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir Innlent Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Innlent Guðmundur Ari í varaformanninn Innlent Fleiri fréttir Kristrún ræðir málin í Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Sjá meira