„Þeir telja sig í raun eiga makrílstofninn“ 29. október 2010 06:00 Tómas H. Heiðar, formaður íslensku samninganefndarinnar, segir tillögu Noregs og Evrópusambandsins hafa valdið miklum vonbrigðum. „
Sú ósanngjarna afstaða Noregs og Evrópusambandsins, sem endurspeglast í fáránlegri tillögu þeirra um 3,1 prósents hlutdeild Íslands í makrílveiðunum á næsta ári, veldur okkur miklum vonbrigðum. Tillagan er algjörlega óraunhæf og ekki til þess fallin að stuðla að lausn málsins," segir Tómas H. Heiðar, formaður samninganefndar Íslands. Viðræður strandríkjanna fjögurra, Íslands, ESB, Færeyja og Noregs, hófust í London á þriðjudag en þeim lauk síðdegis í gær. Tilboðið er runnið undan rifjum Norðmanna, en er stutt af ESB. Það þýðir að kvótinn færi úr 130 þúsund tonnum niður í 26 þúsund tonn en veiðar Íslendinga í ár voru 17 prósent af veiðistofni. Jón Bjarnason sjávarútvegsráðherra sagði á aðalfundi LÍÚ í gær að tilboðið væri fráleitt. Tómas segir að tillaga ESB og Noregs bendi „eindregið til þess að þessir aðilar telji sig í raun eiga makrílstofninn einir og séu þess umkomnir að skammta Íslendingum og Færeyingum smávægilega kvóta". Tómas segir að það hafi tekið mörg ár fyrir Norðmenn og ESB að viðurkenna stöðu Íslands sem strandríkis og sennilega þurfi þeir að fá svigrúm til að venjast breyttu útbreiðslu- og göngumynstri makrílsins. Í því ljósi sé ef til vill óraunhæft að ætla að sömu aðilar verði fljótir til að viðurkenna sanngjarna hlutdeild Íslands í makrílstofninum. Ákveðið var að halda viðræðunum áfram í London dagana 8.-12. nóvember.- shá
Mest lesið Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Innlent Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Innlent Hýdd 140 sinnum fyrir áfengisneyslu og kynlíf utan hjónabands Erlent Ákæru fyrir manndráp vísað frá Erlent Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Innlent Nýbirt skjöl varpa ljósi á dánarstund Epstein Erlent Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Innlent Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Innlent Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Innlent Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Innlent Fleiri fréttir Þúsundir kvartana vegna leigubílaaksturs en fagnar breytingum Breki Atlason gefur kost á sér á lista Miðflokksins Skjálfti fannst í Hveragerði Jói Fel málar með puttunum „Voðalega eru Íslendingarnir peppaðir“ Vísar því á bug að HSÍ fái ekkert fyrir sinn snúð Handboltaveisla í beinni, málsvörn olíufélaga og fögnuður leigubílstjóra Forsætisráðherra muni alltaf hafa samráð við forseta Rannsókn vegna Deildu.net hætt tíu árum frá kæru Ríkisstjórnin rugli og olíufélögin ekki sökudólgurinn Betri að innleiða tilskipanir en verri að innleiða reglugerðir Segir um að ræða alvarlega aðför að sjálfstæði forseta Íslands Hitni undir olíufélögum sem þurfi að passa sig Stórleikurinn riðlar dagskrá margra Afar sérstakt að lækka laun og það á verkalýðsdaginn sjálfan Kristrún ræðir verðbólguna og allt á suðupunkti fyrir leikinn í kvöld Aldrei verið gefnar út fleiri rauðar viðvaranir Finnist hvergi eins sterk skilyrði til umhverfisverndar í lagareldi Streymi: Heilsan okkar: Meðferð offitu hjá fullorðnum Burðardýr hlaut þungan dóm fyrir vökvasmygl Fífldjarft að fara í formanninn en varaformannsembættið...? Játaði brot sín og sleppur ekki aftur við fangelsisvist Ráðhús Árborgar sprungið – 10 starfsmenn fluttir í annað húsnæði Streymi: Málþing um stöðu fatlaðra barna í íþróttum Lögregla eltist við afbrotamenn Harma launalækkanir í fiskeldi á Vestfjörðum Myndbirtingar foreldra geti skapað hættu Óvissustigi lýst yfir vegna snjóflóðahættu „Muni ekki valda neinu öðru en umferðaröngþveiti“ „Mér þykir leiðinlegt að þetta gangi ekki betur“ Sjá meira