Innlent

Segir breytingar á skattkerfinu lýsa vanþekkingu á efnahagslífinu

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir að breytingarnar á skattkerfinu lýsi vanþekkingu. Mynd/ GVA.
Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, segir að breytingarnar á skattkerfinu lýsi vanþekkingu. Mynd/ GVA.
Þær breytingar sem ríkisstjórnin hefur gert á skattkerfinu lýsa ótrúlega mikilli vanþekkingu á efnahagslífinu. Skattkerfið hafi verið fært áratugi aftur í tímann, einfaldleika þess og gagnsæi hafi verið fórnað. Þetta kom fram í ræðu Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka atvinnulífsins, á opnum fundi samtakanna og Viðskiptaráðs Íslands um skattamál fyrirtækja í morgun.

„Engin tilraun var gerð til þess að hlusta á þær aðvaranir sérfræðinga og hagsmunaaðila að kerfið yrði flóknara, eftirlit umfangsmeira og dýrara og ekki síst að hættan á undanskotum og mistökum ykist. Þetta er nánast eins og að horfa inn í postulínsbúð þar sem óð fílahjörð hefur leikið lausum hala," sagði Vilmundur.

Í skýrslu Viðskiptaráðs og Samtaka atvinnulífsins um skattaumhverfið segir að mikilvægt sé að skattkerfið sé einfalt. það auðveldi allar ákvarðanir, auki getu skattyfirvalda til að fylgja skattareglum eftir og kostnaður af eftirfylgni verði lægri en ella. „Einföldu skattkerfi fylgir aukin hagkvæmni og jákvæðara viðhorf almennings en það dregur úr skattsvikum og lækkar kostnað skattyfirvalda og almennings. Skattkerfið þarf einnig að vera hóflegt í alþjóðlegum samanburði, hlutlaust innan skattstofna, hlutlaust innan skattstofna, með alla hagkvæma skattstofna í notkun og stöðugt til lengri tíma," segir í skýrslunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×