Slitastjórn Glitnis mun athuga innistæður Jóns Ásgeir 13. júlí 2010 19:09
Slitastjórn Glitnis ætlar að gera sjálfstæða athugun á því hvort innistæður upp á yfir þrjátíu milljarða króna sem Jón Ásgeir Jóhannesson sendi Lárusi Welding og Jóni Sigurðssyni upplýsingar um í september 2008, hafi tilheyrt Iceland Foods. Formaður slitastjórnarinnar segir rannsókn Kroll ekki ábótavant. Malcolm Walker, forstjóri Iceland Foods, sagði í fréttum okkar í gær að innistæður upp á 202 milljónir punda, sem Jón Ásgeir sendi Lárusi Welding og Jóni Sigurðssyni upplýsingar um í september 2008, hafi tilheyrt Iceland Foods. Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis, sagði í eiðsvörnum vitnisburði fyrir breskum dómstólum að slitastjórnin og Kroll hafi ástæðu til að ætla að þær tilheyrðu Jóni Ásgeiri. - Núna segir forstjóri Iceland Foods, að þessar innistæður hafi tilheyrt því fyrirtæki, eruð þið með gögn sem sýna fram á annað? „Nú þessi skýring er komin fram núna og við munum að sjálfsögðu gera okkar athuganir á þessu en það er ekkert sem ég get tjáð mig um á þessu stigi," segir Steinunn Guðbjartsdóttir, formaður slitastjórnar Glitnis. - En hvers vegna er þetta að koma fyrst fram núna? „við auðvitað fengum upplýsingar um þetta í gegnum tölvupóst en höfum ekki fengið neinar skýringar fyrr en núna á þessu," segir Steinunn. Steinunn segist ekki óttast að málið skaði trúverðugleika rannsóknarinnar: „Og ég get fullyrt það að það er engin ástæða til að hafa áhyggjur af því að það séu einhverjar „loopholes" í rannsókninni." - Eruð þið með gögn sem sýna fram á að Jón Ásgeir sé að segja ósatt? „Ég get ekki tjáð mig um það en ég get vísað í það sem þegar er komið fram og orð dómarans við réttarhaldið í Bretlandi, að málið væri hið undarlegasta og það stemmdi ekki," segir hún. Sjá frétt hér.
Mest lesið Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu Innlent Tekur U-beygju og kallar stuðningsmenn sína aumingja Erlent Átta börn fædd úr erfðaefni þriggja einstaklinga til að fyrirbyggja sjúkdóma Erlent Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Innlent Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Innlent Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Innlent Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Innlent Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Innlent Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Innlent Aðalsvið Tomorrowland brann til kaldra kola Erlent Fleiri fréttir Flutti tæp þrjú kíló af kókaíni til landsins og fær tvö ár Ætlar ekki að þegja til að láta fordómafullu fólki líða betur Strandveiðar færast frá Viðreisn til Flokks fólksins Myndir: Flugu til Þórsmerkur og Grindavíkur Mótmælendur lokuðu veginum að Bláa lóninu „Annars lítur þetta ekki mjög vel út fyrir þær“ „Sýnið nú kjark og dug og gerið þetta almennilega“ Grunur um að maður hafi kveikt í húsi í Reykjanesbæ Staðan á gosinu og óánægja með lokanir í Grindavík Segir ferðaþjónustunni mismunað og efnir til mótmæla Félag eldri borgara vildi bygginguna nær lóðarmörkunum Von der Leyen dásamaði útsýnið á Reykjavíkurflugvelli Landlæknir hlynnt því að banna ljósabekki Loftgæði mælast óholl á Akureyri Dregið úr virkni en virðist enn gjósa í um tíu gígum Met í verðtryggðum lánveitingum lífeyrissjóðanna Ásthildur bendir strandveiðimönnum á minnihlutann Opnaði listasýningu aldargamall og segir verkin verða eins og börnin sín Blámóða vofir yfir Vestfjörðum og Skagafirði Dettifossi kippt í lag og seinkar um sólarhring Grindvíkingum hleypt inn, varnargarðar hækkaðir og Bláa lónið opnar Vill fyrst og fremst fá að njóta ævikvöldsins í friði „Af hverju þetta brestur strax, það skiljum við ekki alveg“ Kort: Sprungan lengist til norðurs Strandveiðar bannaðar á morgun Gos í beinni, ósáttir Grindvíkingar og íbúum drekkt í steypu Alvarleg árás með hamri í Reykjavík Sýknaður af ákæru um að nauðga konu í afmælisveislu hennar Varað við fölsuðum töflum sem innihalda hættulega efnablöndu Gengu að gosinu og óku til Grindavíkur án þess að vera stöðvaðar Sjá meira