Innlent

Rekstur Landspítalans jákvæður

Björn Zoëga.
Björn Zoëga. Mynd/Pjetur
Rekstrarafgangur Landspítala á fyrstu sex mánuðum ársins 2010 nam rúmum 35 milljónum króna, samkvæmt hálfsársuppgjöri sem Ríkisendurskoðun hefur staðfest. Í byrjun ársins var spítalanum gert að lækka rekstrarkostnaðinn um rúm 9% eða 3400 milljónir króna. Með umfangsmiklum hagræðingaraðgerðum sem gripið var til á öllum sviðum spítalans um áramót hefur tekist að ná þessu markmiði, að því er fram kemur í tilkynningu frá spítlanum.

„Það er ótrúlega góður árangur þegar litið er til þeirra erfiðu aðstæðna sem við höfum staðið frammi fyrir og þurft að takast á við," segir Björn Zoëga, forstjóri Landspítalans. „Það hefur verið erfitt verk og sársaukafullt fyrir marga en með samstilltu átaki gengið furðu vel og án þess að öryggi sjúklinga hafi verið ógnað."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×