Stórhækkun á orkuverði 27. ágúst 2010 18:47
Orkuverð frá Orkuveitu Reykjavíkur mun hækka um 28,5% þann 1. október. Þetta var ákveðið á eigendafundi Orkuveitunnar sem lauk klukkan hálf sjö í dag. Gert er ráð fyrir gjaldskrárhækkunin skili Orkuveitunni fjórum milljörðum króna og að hagræðingaraðferðir skili tveimur milljörðum aukalega í kassann. Í fréttatilkynningu frá Orkuveitunni kemur fram að tekjur fyrirtækisins hafi rýrnað á síðustu árum og eins og staðan sé í dag geti Orkuveitan ekki staðið undir endurgreiðslu lána. Haraldur Flosi Tryggvason, stjórnarformaður Orkuveitunnar, sagði að uppsagna að vænta hjá Orkuveitunni í samtali við Heimi Má Pétursson, fréttamann Stöðvar 2 í kvöld. Í fréttatilkynningu frá Orkuveitunni kemur fram að raforkuverðshækkunin nemi 28,5%. Fyrir fjögurra manna fjölskyldu í fjölbýli þýði það um 2500 króna hækkun á mánuði. Gert er ráð fyrir að áhrifin á vísitölu neysluverðs séu 0,39% hækkun. Þá er jafnframt vísað til hagræðingaaðgerða - gert sé ráð fyrir að draga saman um 2 milljarða í rekstrinum, sagt er að það verði meginviðfangsefni nýs forstjóra næstu vikur og mánuði og sé sú vinna þegar hafin: „Tónninn hefur þegar verið gefinn af hálfu stjórnar með því að lækka laun forstjóra um hundruð þúsunda króna á mánuði. Hann hefur síðan staðið fyrir því að rýma efstu hæð Orkuveituhússins í því skyni að leigja hana út og afla þannig tekna," segir í tilkynningunni. Þá er stefnt að selja ýmsar eignir sem Orkuveitan á. Þar á meðal Perluna, eignahluti í ýmsum félögum, líkt og HS Veitum og Landsneti, lóðir og landareignir.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Sjá meira