Innlent

Meirihluti telur hag sinn betri innan ESB

Ný könnun Eurobarometer sýnir að meirihluti íbúa Norðurlandaþjóðanna í ESB telja hag sinn betri vegna aðildar að ESB.

76% Dana segja ESB aðild hafa haft jákvæð áhrif fyrir Danmörk. Þegar Finnar eru spurðir sömu spurningar kemur í ljós að 54% þeirra segja ESB aðild hafa haft jákvæði áhrif fyrir Finnland.

Þegar Svíar eru spurðir sömu spurningar kemur í ljós að 52% þeirra telja ESB aðild hafa haft jákvæð áhrif fyrir Svíþjóð.

Meðaltal ESB ríkjanna allra við þessari spurningu er 53%.

29% Íslendinga telja hag sinn muni batna við aðild að ESB ef við myndum ganga inn í ESB - þrátt fyrir að vita ekki hvað muni felast í aðildarsamningnum við ESB enda samningsviðræðurnar rétt að hefjast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×