Plastic Ono Band endurreist á Íslandi í haust 27. ágúst 2010 12:16 Yoko Ono ásamt forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni.
Yoko Ono ætlar að kalla saman hljómsveitina Plastic Ono Band í Reykjavík til að minnast 70 ára afmælis John Lennon hinn 9. október næst komandi. Alice Walker, höfundur bókarinnar the Color Purple er ein þeirra sem fær Lennon friðarverðlaunin í ár. Yoko Ono greinir frá því á heimasíðu sinni í dag að hún muni boða til nokkurra viðburða í Reykjavík á afmælisdegi John Lennon hinn 9. október næst komandi, en þá hefði John Lennon orðið sjötugur. Að venju mun Yoko afhenda Lennon friðarverðlaunin. Þau eru alla jafna veitt tveimur aðilum sem af hughrekki, eins og segir á heimasíðunni, hafa beitt sér fyrir friði, sannleika og mannréttindum. Þau sem fá Lennon friðarverðlaunin í ár eru kvikmyndagerðarmaðurinn Josh Fox, sem gerði heimildarmyndina Gasland á þessu ári, Barbara Kowalcky, sem stofnaði samtök árið 2001 til að berjast gegn mengun í fæðu sem valdið getur sjúkdómum í börnum, rithöfundurinn Michael Pollan fyrir bækur og greinar um hrein matvæli og skáldið Alice Walker baráttukona gegn kynþáttafordómum, kynjamisrétti og fyrir almennum mannréttindum. En Walker er frægust fyrir bók sína The Color Purple, sem síðar var kvikmynduð með Oprha Winfrey í aðalhlutverki. Yoko bíður vinum sínum víða að úr heiminum til athafnar í Viðey að kveldi afmælisdags Lennons til að tendra á friðarsúlunni. Þá mun Yoko smala saman fólki í hljómsveitina Plastic Ono Band sem þau hjón stofnuðu árið 1968, eða áður en Bítlarnir liðu undir lok. Mun hljómsveitin halda tónleika í tilefni afmælisins, en það telst til heimsviðburðar í rokkheiminum að sú hljómsveit komi saman á nýjan leik. En nokkrar hljómplötur komu út í lok sjöunda og byrjun áttunda áratugarins undir nafni hljómsveitarinnar.
Mest lesið Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Innlent Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Innlent Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar Innlent Áhyggjur uppi vegna nýrrar brúar milli Rússlands og Norður-Kóreu Erlent Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Innlent „Við munum ná markmiðum okkar“ Erlent Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Innlent Ætlar að áfrýja dómnum Innlent Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Innlent Johnson & Johnson greiðir 693 milljarða króna vegna málsókna Erlent Fleiri fréttir Vilja fá ókeypis aðgang að gommu af höfundarvörðu efni Ætlar að áfrýja dómnum Ming Ting dæmd í tólf ára fangelsi Fluttur með þyrlunni eftir vinnuslys Meirihluti aðildarfyrirtækjanna andvígur Saka Kristján um að beita Landhelgisgæslunni fyrir sig Hátt í þúsund atkvæði komin: Margfalt fleiri mættu á fyrsta degi Kannast ekki við afskipti af Bandero og uppkvaðning í Edition málinu Stórslysaleg fyrsta upplifun af landinu Hátt hlutfall karlmanna á tvítugsaldri á bótum Enn skelfur í Bárðarbungu Rafmagnslaust í Breiðholti í um klukkustund Kölluðu til Bandero en fengu ekkert svar „Þetta eru hreinlega loftslagsbreytingar“ Senda norðlenskt rusl úr landi Umfangsmestu rýmingar frá seinni heimsstyrjöldinni: „Tunglið var orðið appelsínugult“ Verst frétta um hvað felst nákvæmlega í fyrirhuguðum niðurskurði Stjórnlausir skógareldar og vertar sem fagna Á þriðja hundrað þegar greitt atkvæði Brotlenti í djúpu gili Dæmdur lögreglumaður kenndi neikvæðu umtali samstarfsfélaga um Varanlegar undanþágur hluti af ESB frá upphafi Snýr aftur á spítalann í skugga kæru til Landsréttar Flugmaðurinn er fundinn Sækja slasaðan göngumann á Esjuna „Fólk er ekki heimskt“ Sorglegt að ekki hafi tekist að vernda konuna Ljóst hvar sólin verður um versló og hvar ekki Varði helginni á spænskri fjöldahjálparstöð Sauð upp úr milli ferðamanns og meintra vasaþjófa Sjá meira