Blásandi borhola gæti ráðið úrslitum Kristján Már Unnarsson skrifar 27. ágúst 2010 19:07
Virkjana- og rannsóknaleyfi á Reykjanesskaga, sem HS Orka sótti um fyrir þremur árum, hafa ekki enn fengist, meðal annars vegna ágreinings vísindamanna um hve mikil orka leynist í iðrum jarðar. Þetta er ein af ástæðum þess að HS Orka telur forsendur orkusamning vegna álvers í Helguvík brostnar. Álversframkvæmdirnar í Helguvík eru í uppnámi. Orkufyrirtækin, sem Norðurál samdi við um orkukaup fyrir þremur árum, hafa ekki getað virkjað. Forstjóri HS Orku, Júlíus Jónsson, segir félagið hafa gert sér vonir um að geta byrjað að afhenda orkuna fyrir árslok 2009, en það hafi ekki enn fengið leyfi til að byrja á neinu. Fyrst átti að stækka Reykjanesvirkjun um 50 megavött með því að bæta við þriðju aflvélinni, sem þegar er komin til landsins. Orkustofnun efast hins vegar um að jarðhitasvæðið standi undir viðbótinni. Júlíus segir HS Orku ekki sammála því og að vélin hefði annars ekki verið keypt. Sérfræðingar HS Orku, sem og ráðgjafar hjá ÍSOR, Vatnaskilum og Mannviti, teldu, - þó svo menn gætu aldrei verið 100 prósent vissir, - yfirgnæfandi líkur og réttlætanlegt að ráðast í framkvæmdir. Orkustofnun teldi hins vegar leika vafa um þetta. Borhola frá því í vor gæti ráðið úrslitum en hún verður látin blása í næsta mánuði, til að sannreyna hve mikil orða leynist oní henni. En HS Orka vill virkja á fleiri stöðum fyrir Helguvík; í Eldvörpum og Krýsuvík, og óskaði fyrir þremur árum eftir samþykki viðkomandi sveitarfélaga, Grindavíkur og Hafnarfjarðar, fyrir rannsóknarborunum. Þetta væri enn í vinnslu og á meðan gæti HS Orka hvorki rannsakað né borað, segir Júlíus. Meðal annars setur Grindavík þá kröfu að orkan verði nýtt í heimabyggð, en það segir Júlíus að hjálpi ekki. Grindvíkingar hafi lýst því yfir að þeir vilji að minnsta kosti fá hluta af orkunni til nýtingar í Grindavík.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Erlent Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Erlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ Innlent Fleiri fréttir Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Sjá meira